152. löggjafarþing — 35. fundur,  8. feb. 2022.

hagkvæmnisathugun á uppbyggingu Skógarstrandarvegar.

33. mál
[16:59]
Horfa

Flm. (Bjarni Jónsson) (Vg) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir innleggið. Ég er bjartsýnn á að það fari eitthvað meira að gerast. Það er mjög kallað eftir þessu á svæðinu, það er ákveðin samstaða fólks og sveitarfélaga um að þarna þarf eitthvað að gerast. Það skiptir svo miklu máli að geta tengt betur saman þessi byggðarlög á svæðinu og styrkt þau þannig. Það færir mér bjartsýni. Sem barn keyrði ég mikið þarna um, ég er alinn upp á svæðinu, og þykir leitt að horfa upp á að vegurinn sé litlu betri en hann var þá, þegar maður fer um. Það hafa verið gerðar ákveðnar úttektir en það vantar meiri og betri samfélagslega úttekt á þessu, eins og ég er að leggja til. Í raun felur tillagan ekki í sér stórkostleg útgjöld heldur fyrst og fremst að fram fari þetta heildstæða mat þar sem allir hagsmunir eru teknir inn sem varða samfélagið og hvaða þýðingu það getur haft að koma þarna á betri og meiri samgöngum. Ég held að það vanti líka upp á mælingar og fleira hjá Vegagerðinni sem má gera betur.

Hvað það varðar að sporin hræði — ég hef lengi fylgst með og barist fyrir samgöngubótum og hef horft á afdrif framkvæmda sem hafa lent inni á samgönguáætlun, sérstaklega þær sem lenda á þriggja ára áætlun. Ég er að horfa á eina framkvæmd byrja núna sem var á þriggja ára áætlun þegar ég byrjaði í sveitarstjórn fyrir 20 árum og fór að berjast fyrir þeirri framkvæmd, sem var Skagastrandarvegur eða Þverhálsvegur. Maður sér allt of mörg dæmi um það að framkvæmdir eru settar inn á áætlun en síðan er því ekki fylgt eftir nema kannski því sem er næst manni í tíma í áætlanagerðinni.