152. löggjafarþing — 35. fundur,  8. feb. 2022.

hagkvæmnisathugun á uppbyggingu Skógarstrandarvegar.

33. mál
[17:01]
Horfa

Berglind Ósk Guðmundsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Takk kærlega fyrir svarið. Mér finnst ánægjulegt að heyra að samstaða sveitarfélaganna sé mikil. Ég held að það sé einmitt lykillinn að samgöngubótum á landsbyggðinni, þ.e. að sveitarfélögin standi saman og heils hugar bak við þær framkvæmdir sem ráðast þarf í. En ég held líka að eftir Covid-árin, og það að margir Íslendingar hafa svolítið neyðst til að ferðast innan lands, sé það tilfinning fleiri að það þurfi einmitt að bæta í og fara markvisst yfir það hvaða vegi við þurfum að bæta. Eins og ég sagði áðan er ég einlægur stuðningsmaður og áhugamaður um samgöngubætur á landsbyggðinni og finnst þetta gott mál.