152. löggjafarþing — 35. fundur,  8. feb. 2022.

hagkvæmnisathugun á uppbyggingu Skógarstrandarvegar.

33. mál
[17:03]
Horfa

Flm. (Bjarni Jónsson) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni innleggið og áhugann sem við deilum á samgöngubótum og ekki síst á landsbyggðinni. Auðvitað eru margar stærri framkvæmdir sem við þurfum á að halda en gleymum ekki síður því sem við þurfum að gera til að tengja betur saman nærliggjandi byggðarlög og fólk innan þeirra byggðarlaga, styrkja samfélagið þannig í því að geta sótt fram. Í Breiðafirði liggur það nokkurn veginn beint fyrir hvað þetta getur skipt miklu máli. Fólk getur samnýtt betur þjónustu, menntamál, heilsugæslu, félagslíf og allt mögulegt. Frekari sameiningar sveitarfélaga eru líka mögulegar ef það myndi verða. Það skiptir gríðarlega miklu að hægt sé að tengja samfélögin saman í því tilliti. Við göngum veginn og fylgjum þessu eftir.

Ég held að fólk hafi einmitt áttað sig enn betur á þessu í þessari Covid-bylgju, sem við erum vonandi að fara að klára. Fólk er farið að hugsa aðeins á annan hátt, það komu tímabil sem fólk fór ekki eins mikið á milli landshluta, og líka um það hvað það skiptir miklu máli að styrkja einstök samfélög og svæði enn betur. Ég vona bara að við þurfum ekki að bíða í 100 ár til viðbótar til að klára þetta mál og koma þessu í gegn.