152. löggjafarþing — 35. fundur,  8. feb. 2022.

Fiskistofa.

35. mál
[17:05]
Horfa

Flm. (Inga Sæland) (Flf):

Virðulegi forseti. Hér mæli ég fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Fiskistofu, nr. 36/1992, með síðari breytingum. Með mér eru gjörvallur þingflokkur Flokks fólksins, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Eyjólfur Ármannsson, Guðmundur Ingi Kristinsson, Jakob Frímann Magnússon og Tómasar Tómasson, ásamt mér sjálfri.

Frumvarpið hljóðar svo, með leyfi forseta:

„1. gr. 2. mgr. 6. gr. laganna fellur brott.

2. gr. Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2022.“

Þá að greinargerð með frumvarpinu. Það hefur verið áður lagt fram tvívegis, á 150. og 151. löggjafarþingi og svo er ég að mæla fyrir því nú í þriðja sinn, því að því miður náði það ekki fram að ganga í hin tvö skiptin.

Vorið 2010, einu ári eftir að núverandi strandveiðikerfi tók gildi, var sett nýtt ákvæði um svokallað strandveiðigjald í lög um veiðieftirlitsgjald, nr. 33/2000. Þar var kveðið á um að við útgáfu leyfis til strandveiða skyldi, auk almennrar greiðslu fyrir veiðileyfi, greiða 50.000 kr. í sérstakt strandveiðigjald á hvert strandveiðileyfi sem gefið væri út af stjórnvöldum. Fiskistofa skyldi innheimta gjaldið. Tekjum af strandveiðigjaldi skyldi svo ráðstafa til þeirra hafna þar sem afla, sem fenginn væri við strandveiðar, yrði landað. Allar götur síðan þetta var innleitt hefur hið svokallaða strandveiðigjald verið óbreytt en með 1. gr. laga um breytingu á lögum um Fiskistofu og ýmsum öðrum lögum (gjaldskrárheimild), nr. 67/2015, var ákvæðið fært undir 6. gr. laga um Fiskistofu.

Ég lagði fram fyrirspurn til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra á 149. löggjafarþingi, um gjald á strandveiðar. Þar var m.a. spurt um upphæðir svokallaðs strandveiðigjalds frá upphafi vertíðar 2010 til loka vertíðar 2018, greint eftir vertíðum og höfnum og reiknað í öllum tilvikum til núvirðis. Í svarinu kemur fram að þetta gjald hafi samtals yfir allt landið á árabilinu numið um 342 millj. kr. reiknað til núvirðis í apríl/maí 2019. Á núvirði eru það að jafnaði 38 millj. kr. árlega. Ég ætla ekki að fara nánar út í það. Við vitum að það eru á bilinu 320–360 bátar sem hafa verið á strandveiðum. Staðreyndin er sú að það eru engir aðrir bátar, engar aðrar veiðar, sem búa við þetta svokallaða strandveiðigjald, þessar 50.000 kr., nema minnstu bátarnir, nema strandveiðibátarnir, þannig að það er í rauninni um algjöra mismunun að ræða. Markmiðið með þessu ákvæði á sínum tíma var að efla aðstöðuna í höfnum fyrir strandveiðibáta en málið er að það er löngu búið að því. Það er alveg ástæðulaust að halda áfram endalaust að kreista úr þessum smábátum líftóruna eins og er verið að gera í núverandi strandveiðikerfi. Við skulum átta okkur á því að þessir bátar hafa einungis heimild í 48 daga á ári til þess að veiða. Það er eiginlega með hreinum ólíkindum. 12 dagar í mánuði, takk fyrir kærlega. Segjum að það gefi á bátinn þá vikuna sem á að taka þessa þrjá daga að meðaltali, miðað við 12 daga. Ef það gefur á bátinn, þá bara falla þeir dagar niður, takk fyrir. Kæri smábátasjómaður, strandveiðimaður, þú tapar bara þessum dögum vegna þess að veðrið sagði svo og við ætlum ekki að gefa þér kost á því að ráða því sjálfir hvenær þú sækir sjóinn. Löggjafinn hér ætlar að ráða því hvernig veður og vindar blása til sjósóknar. Svoleiðis er nú það. Það má í rauninni segja að það sé með ólíkindum hvernig er vegið að þessari atvinnugrein.

Flokkur fólksins vill frjálsar handfæraveiðar. Hann vill leyfa smábátum allt í kringum landið að veiða frjálst vegna þess að það er algerlega lýðum ljóst og öllum þeim sem vilja viðurkenna það og eru með eitthvað sem heitir skynsemisrökhugsun í kollinum, hvort sem þeir eru sérfræðingar á sviði sjávarútvegsmála eða annað, að það er ekki handfæraveiðar smábáta undir tíu tonnum sem munu ógna lífríkinu í kringum Ísland. Hins vegar myndi það gjörbreyta lífinu í þeim sjávarbyggðum sem leynt og ljóst er búið að vera að reyna að kreista úr hvern einasta blóðdropa. Þannig að það er eiginlega með furðu að ég skuli vera að mæla fyrir þessu frumvarpi í þriðja skipti í röð þegar það er augljóst að verið er að mismuna þessari atvinnugrein umfram aðrar í sjávarútvegi. Það er alveg stórmerkilegt. Í stóra samhenginu myndu allir spyrja: 50.000 kr. hvað er nú það? Það er, virðulegi forseti, 50.000 kr. of mikið fyrir strandveiðisjómanninn. Hann er píndur nóg. Það með hreinum ólíkindum að horfa upp á það hvernig leynt og ljóst er reynt að eyðileggja þessa útvegsgrein. Núna síðast, hvorki meira né minna en í desember síðastliðinn, þá afrekaði nýr sjávarútvegsráðherra það að setja reglugerð sem skerðir í rauninni aflaheimildir þessara smæstu báta á strandveiðum um 1.500 tonn, úr ríflega 10.000 tonnum niður í 8.500. Þetta er algerlega með ólíkindum, virðulegi forseti. Ég myndi segja að það er lágmarksvirðing við strandveiðisjómenn okkar að taka burtu þessar 50.000 kr. í sérstakt hafnargjald sem engir aðrir sjómenn þurfa að greiða, ekki togarar, ekki neitt. Engir aðrir þurfa að greiða þetta. Þetta er brot á jafnræðisreglu, þetta er hrein og klár mismunun. Það er eiginlega sárara en tárum taki að það skuli vera löggjafinn sjálfur, sem leggur blessun sína yfir slíka mismunun.

Virðulegi forseti. Svo það sé sagt þá hefur Flokkur fólksins barist fyrir þessu frá fyrstu tíð, alveg frá því að hann varð til, enda er ég fædd og uppalin í yndislega fallegu sjávarplássi sem heitir Ólafsfjörður. Það er nöturlegt að sjá hvernig búið er að kreista lífið úr fallega yndislega firðinum sem ég fæddist og ólst upp í, þar sem hjartað slær alltaf og söknuður er heim, að horfa til þess þegar maður var lítil táta, skoppandi niður á höfn, sjá þessa fullorðnu menn vera að skvera bátana sína, hlakka til að fara á sjóinn, að veiða á pilkinn, eins og hann pabbi gamli var með, eða vera með færin sín. Það er sárara en tárum taki að horfa upp á það að þessi öfugþróun hafi fengið að vera við lýði svona lengi, að árum saman, alveg frá því að framsal kvótans var gefið frjálst, skuli vera búið að níðast á nákvæmlega smábátasjómönnum allt í kringum landið með þeim gríðarlegu og ömurlegu neikvæðu afleiðingum sem það hefur haft fyrir litlu sjávarplássin okkar.

Virðulegi forseti. Ég mun ekki trúa því fyrr en ég tek á því ef löggjafinn fellir ekki niður þessa 50.000 kr. aukagreiðslu sem er lagt á þennan sjávarútveg umfram allan annan. Ég trúi því ekki, virðulegi forseti, að ég muni mæla fyrir þessu í fjórða skipti á næsta löggjafarþingi.

Þá vil ég segja, þó að það sé allt annað mál en beintengt náttúrlega sjávarútveginum: Til hamingju með Verbúðina, stórkostlegir þættir sem sýna þessa þróun algerlega svart á hvítu, frábærlega heimildarlega byggðir þættir og maður er stoltur af því að til sé slíkt og þvílíkt hugsjónafólk sem hefur komið þessu svona vel frá sér að maður upplifir í rauninni í gegnum áhorf á þessa þætti hvernig örfáir aðilar sölsuðu raunverulega undir sig sjávarauðlindina, aðilar sem nú í dag eru orðnir svo moldríkir að þeim og allri fjölskyldunni mun ekki endast ævin til að eyða þótt þeir myndu eyða eins miklu og þeir gætu hvern einasta dag. Þeir eru hins vegar búnir að sölsa undir sig landið og miðin og eiga hér meira og minna í öllum atvinnurekstri og öllu sem til er. En það munu aldrei verða smábátasjómennirnir, strandveiðisjómennirnir sem munu ógna lífríkinu í kringum landið. Þessi hugsjón sem var farið af stað með á sínum tíma, og ákvörðun sem greinilega var tekin í reykfylltum bakherbergjum ef marka má það sem maður ólst upp við, það sem um var talað á þeim tíma — en það er alveg á hreinu að það er hægt, virðulegi forseti, að vinda ofan af þessari þróun. Það verður ekki hægt einu sinni að brúa bilið á milli þings og þjóðar og koma á sátt um okkar sameiginlegu auðlind nema við fáum kvótann aftur heim. Það er eina leiðin, virðulegi forseti, enda hefur Flokkur fólksins sagt líka frá degi eitt: Kvótann heim. Það erum við, íslenska þjóðin, sem á auðlindina í kringum landið, ekki fáir, útvaldir sægreifar, það er nú bara ekki flóknara en það, sem má segja í raun og veru að borgi varla fyrir aðgang að auðlindinni, hvað þá annað. Það væri mikill munur á ríkiskassanum þó að þeir greiddu ekki nema helminginn af því til okkar fyrir aðgang að sameiginlegri auðlind eins og þeir taka sjálfum sér í arð á hverju einasta ári. Þarna er ég komin langt út fyrir efnið en ég verð bara verulega heit þegar ég fer að tala um sjávarútvegsmálin.

Virðulegi forseti. Ég ítreka ég enn og aftur: Ég trúi ekki fyrr en ég tek á því að ég eigi eftir að mæla fyrir þessu frumvarpi í fjórða sinn sem er ekkert annað en leiðrétting á mismunun sem er höfð í frammi gagnvart þessum einstaka sjávarútvegi, sem eru strandveiðibátar, litlir smábátar, sem einir greiða af öllum 50.000 kr. í hafnargjald. Þannig að, virðulegi forseti, það er ekkert annað en leiðrétting, ekkert annað en sanngirni og réttlæti í því að afnema þetta strandveiðigjald með öllu. Það mun sannarlega ekki skella ríkissjóði á höfuðið að standa við það að gera hlutina betri og leiðrétta aðra eins mismunun og hér er á ferð.