almannatryggingar.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi um breytingu á frítekjumarki vegna lífeyristekna. Hvað þýðir það nú? Ég vil fyrst segja að á þessu frumvarpi er gjörvallur þingflokkur Flokks fólksins, það erum við sextettinn Inga Sæland, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Eyjólfur Ármannsson, Guðmundur Ingi Kristinsson, Jakob Frímann Magnússon og Tómas A. Tómasson.
Frumvarpið hljóðar svo:
„1. gr. Við 1. mgr. 23. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þá skal ellilífeyrisþegi hafa 1.200.000 kr. sérstakt frítekjumark vegna lífeyristekna.
2. gr. Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2022.“
Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að frumvarpið var lagt fram á 149., 150. og 151. löggjafarþingi. Ég er sem sagt, virðulegi forseti, að mæla fyrir þessu sanngirnis- og réttlætismáli í fjórða sinn. Í millitíðinni hafa eldri borgarar og félagasamtök þeirra, Landssamband eldri borgara, og fleiri gert þær hógværu kröfur sem felast í frumvarpi þessu um að frítekjumark vegna lífeyrissjóðstekna sé miðað við 100.000 kr. á mánuði en ekki 25.000 kr. eins og nú er. Ég legg málið fram að mestu óbreytt.
Almennt frítekjumark er mjög lágt í sögulegu samhengi og er markmið þessa frumvarps að auka sanngirni í almannatryggingakerfinu og hvetja til sparnaðar lífeyrisþega með því að draga úr skerðingum. Við í Flokki fólksins erum alltaf að reyna að draga úr skerðingum. Við viljum ekki láta refsa fólki fyrir að reyna að bjarga sér sjálft, ekki refsa fólki fyrir að vinna og við viljum ekki fótumtroða eignarrétt þeirra á lífeyrissjóðsgreiðslum sem eru lögþvingaðar, við erum skikkuð til að greiða í lífeyrissjóð alla okkar starfsævi. Við veljum það ekki sjálf að borga í lífeyrissjóð. Við veljum það ekki að eiga orðið yfir 6.000 milljarða í eignum lífeyrissjóða, þeir eiga orðið u.þ.b. 60–70% í öllum fyrirtækjum og rekstri í samfélaginu. Þeir lána okkur okkar eigin peninga með okurvöxtum og ég veit ekki hvað og hvað. En það er með ólíkindum að vera búinn að greiða lögþvingað af laununum sínum í lífeyrissjóð alla sína starfsævi og þegar kemur að því á efri árum að eiga að fá að njóta ávaxtanna — nei, þá skaltu sleginn utan undir eina ferðina enn með hrísvendinum og þér er nánast refsað fyrir það vegna þess að 25.000 kr. greiðsla úr lífeyrissjóði byrjar strax að skerða tekjur þínar frá almannatryggingum krónu á móti krónu.
Með lögum nr. 116/2016, um breytingar á lögum um almannatryggingar og fleiri lögum, var m.a. gerð sú breyting á ellilífeyriskerfi almannatrygginga að öll sértæk frítekjumörk vegna einstakra tegunda tekna voru afnumin. Þess í stað var lögfest eitt almennt frítekjumark sem nemur 25.000 kr. á mánuði og gildir um allar tekjur ellilífeyrisþega, óháð tegund þeirra. Með lögum nr. 96/2017 var einnig lögfest sérstakt frítekjumark vegna atvinnutekna, samanber nú 4. málslið 1. mgr. 23. gr. laga nr. 100/2007, um almannatryggingar.
Samkvæmt upplýsingum frá félags- og barnamálaráðherra nema heildarskerðingar til ellilífeyrisþega vegna lífeyrissjóðstekna — takið eftir, vegna lífeyrissjóðsteknanna — 37,556 milljörðum kr. á hverju einasta ári, sem sagt 37.556 millj. kr. Það dylst engum hvers lags gríðarlegar upphæðir það eru sem verið er að taka af eldra fólki og þeim sem eru búnir að greiða lögþvingað í lífeyrissjóð allan sinn starfsaldur. Hvers lags samfélag er þetta eiginlega, virðulegi forseti, sem ræðst svona að eignarrétti þegna sinna og fótumtreður þá, eins og löggjöfin öll í kringum almannatryggingakerfið er að gera? Við skulum ekki gleyma því að það er þak á almannatryggingakerfinu. Það er enginn sem er með meðallaun, sem eru mæld hér um 700 þús. kr. og eitthvað á mánuði, sem á rétt á einni einustu krónu úr almannatryggingakerfinu. Í raun og veru er það þannig að þeir sem eru á lægstu launum og með lægsta afkomu eru hvort sem er þeir einu sem eiga rétt á því að fá greiðslu frá almannatryggingum. Ég er lögblind, 75% öryrki á ofurlaunum hér. Dettur nokkrum í hug að ég sé á örorkuframfærslu almannatrygginga? Nei, ég er of tekjuhá. Og hvort við séum að mæla með því, þegar verið er að tala um forstjóra á ofurlaunum, að hann fái út úr almannatryggingum þá liggur það í hlutarins eðli að svo er ekki. Hvernig dettur nokkrum manni í hug að spyrja svona nema þeim sem hefur ekki hugmynd um hvernig almannatryggingakerfið er uppbyggt? Hefur ekki hugmynd um almannatryggingakerfið yfir höfuð og aular út úr sér svoleiðis vitleysu að það hálfa væri nóg og maður veit varla hvernig maður á að bregðast við hér úr ræðustóli Alþingis þegar maður hefur fengið svona stórfurðulegar fyrirspurnir.
Eldri borgarar hafa sjálfir sparað fyrir lífeyrissjóðshlutdeild sinni. Lífeyristekjur eru því ekki launagreiðslur sem koma frá vinnuveitendum að starfsaldri loknum. Það eru ekki launatekjur frá vinnuveitanda sem koma að starfsaldri loknum, það kemur frá launþeganum sjálfum sem á þessum tímapunkti er að ganga yfir í það að fara á lífeyrisgreiðslur sem hann hélt og var talin trú um strax þegar lífeyrissjóðskerfinu var komið á á sínum tíma, í kringum 1969, að væri sparnaður. Það var algjörlega lýðum ljóst: Þarna eruð þið að spara. Þarna eru þið virkilega að leggja inn svo að þið getið átt betra líf að starfsaldri loknum. Sjáið þið bara til, góðu landar mínir. En það var ekki svo. Það felst skerðing í þessu eins og alltaf í öllum greiðslum sem koma frá Tryggingastofnun, skerðing á grundvelli lífeyristekna, óbein skerðing á þeim hagsmunum sem eldri borgarar hafa unnið sér inn með vinnu sinni í gegnum tíðina.
Það mun samkvæmt upplýsingum frá félags- og barnamálaráðherra aðeins kosta ríkissjóð 16 milljarða kr. í aukin útgjöld árlega að þetta frítekjumark lífeyristekna verði hækkað upp í 100.000 kr. Hvað þýða þessir 16 milljarðar sem þetta kostar ríkissjóð? Það þýðir að ríkissjóður eða ríkið getur ekki skert lífeyrisþega um hans eigin áunnin réttindi upp að 100.000 kr. en það mun skipta sköpum fyrir einstaklinginn og þá sem eru með lágar lífeyrissjóðsgreiðslur, lægstu þrjár, fjórar tekjutíundirnar. Það mun skipta sköpum fyrir þá að geta fengið þessa 75.000 kr. sem eru á milli 25.000 og 100.000 kr. til sín í framfærsluna. Það er eðlilegt, virðulegi forseti, að almenningur njóti eigin sparnaðar og það er skref í rétta átt að koma á sérstöku frítekjumarki upp í 100.000 kr. á mánuði í staðinn fyrir 25.000 kr.
Ég ætla ekki að vísa meira í frumvarpið sem slíkt en það er sárara en tárum taki, maður er bara alltaf svekktur hérna, að mæla fyrir sanngirnis- og réttlætismálum ár eftir ár, löggjafarþing eftir löggjafarþing, án þess að á það sé hlustað. Og það sem meira er, virðulegi forseti, að þetta mál, eins og flest önnur mál sem við mælum fyrir, er svæft í nefnd. Fastanefndirnar taka góðu málin okkar, sanngjörnu málin, réttlætismálin og henda þeim í kvörnina og sturta þeim niður um niðurfallið. Svona er Ísland í dag. Maður hefur stundum velt því fyrir sér hvort það sé tilfellið að það eigi, eins og samfélagið er oft að kalla eftir, að fækka okkur bara hérna um næstum því helming vegna þess að við fáum lítið annað gert en að láta koma illa fram við okkur og svívirðilega með þau góðu mál sem stjórnarandstaðan leggur fram. Þetta er eitt af þeim.
Við vitum að það er ákall úti í samfélaginu. Við vitum að það er gríðarleg fátækt í þessu samfélagi. Við vitum að það er hrópað um meðaltöl. Við vitum að hæstv. fjármálaráðherra talar um lítið annað hér en hvað OECD segir í excel-skjölunum sínum, við höfum það svo rosalega gott, að meðaltali höfum við það gott, kaupmáttur er mjög góður. Þetta er jafnvel sagt vitandi það að við erum að glíma núna við 5,7% verðbólgu, vitandi það að við erum að fara að hækka t.d. greiðslur fátækra fjölskyldna sem eru að berjast með verðtryggt húsnæðislán sitt upp á 40 milljónir, því að nú kostar hér hver múrsteinn orðið heila milljón ef maður ætlar að kaupa sér þak yfir höfuðið og koma sér upp öruggu skjóli. Þessi einstaklingur þarf að borga, ef það verður ekki eitthvað gert í sambandi við þessa 5,7% verðbólgu, um 700.000 kr., meira fyrir lánið sitt á ári, 700.000 kr. meira.
Virðulegi forseti. Það virðist vera ómögulegt eftir heilan starfsaldur, eftir heila starfsævi, að eiga rétt á því sem stjórnarskráin á að tryggja okkur, hinu svokallaða eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar. Það er algerlega fótumtroðið. Eignarrétturinn hér er fótum troðinn, virðulegi forseti. Í þessu tilviki, eftir heila starfsævi, færðu 25.000 kr. út úr lífeyrissjóðnum. Það skiptir engu máli hvort þú nærð endum saman eða ekki. Það skiptir engu máli í hversu bágri stöðu þú ert, þú færð ekkert meira hér, ágæti Íslendingur.
Ég er því í fjórða sinn að mæla fyrir þessu máli. Ég vona að það verði ekki í fimmta sinn. Ég vona að nefndin taki utan um málið og fylgi því eftir núna vegna þess að ákallið er mjög hátt úti í samfélaginu. Það eru mikil bágindi í samfélaginu og það er enginn jöfnuður eða ægilega góð staða og kaupmátturinn alveg eins og blómstrið eina, eins og hæstv. fjármálaráðherra virðist halda. Það er ekki svo. Við vitum að innfluttar vörur hafa hækkað um tugi prósenta. Við vitum að kaupmáttur hefur gjörsamlega hrunið þannig að einstaklingur með 240.000–260.000 kr. á milli handanna sem þarf að borga það í leigu, bara fyrir þriggja herbergja íbúð, á ekki eftir eina einustu krónu til að kaupa sér mat. Hvernig má þetta vera, virðulegi forseti? Hvernig má þetta vera hjá einni ríkustu þjóð í heimi, að við skulum gjörsamlega grímulaust harðloka augunum fyrir bágindum þeirra sem við eigum að vera að hjálpa? Það er kominn tími til þess að stjórnvöld, ríkisstjórnin hér, galopni augun, stígi niður á jörðina til þeirra sem eru að kalla eftir hjálp og aðstoði þá eins og þeir eiga að gera og voru kjörnir til. Við erum 63 þjóðkjörnir fulltrúar hér á Alþingi. Ég er alveg handviss um það, eins og ég stend hérna, að hver einasti stjórnarandstöðuþingmaður myndi fagna því ef ríkisstjórnin stigi fram og hækkaði lágmarksframfærslu, rífi húsnæðisliðinn út úr vísitölunni, komi verðbólgunni strax á morgun í 3,7% og hjálpi þeim sem eru hjálpar þurfi.
Virðulegi forseti. Fyrst og fremst er eignarréttur stjórnarskrárinnar okkur helgur. Við eigum að fá að njóta þess sem við höfum áunnið. Við eigum ekki að vera skikkuð til að láta það af hendi. Það á ekki að refsa okkur, það á ekki að skerða okkur. Það á ekki að koma illa fram við okkur. Það á að a.m.k. að standa við það að þeir sem bágast hafa það eigi þennan örlitla lífeyrisrétt, allt að 100.000 kr., og fái að njóta.
Ég vísa þessu frumvarpi þráðbeint til virðulegs forseta, að hann setji það á réttan stað svo ég sé ekki alltaf í bullinu eins og ég geri hérna svo oft. Ég hvet þingheim allan til að taka utan um málið og virða eignarréttarákvæði stjórnarskrár og virða starfsævi okkar sem og eldra fólks sem nú bíður eftir því að fá að eiga áhyggjulaust ævikvöld. En því miður, virðulegi forseti, þá er það ekki svo hjá allt of mörgum, þvert á móti.