almannatryggingar.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir hennar framsögu. Mér finnst þetta vera mikilvægt mál til umfjöllunar. Við höfum verið að ræða skerðingar í bótakerfunum svo árum skiptir og komumst ekki að neinni niðurstöðu. Við vitum að lífeyriskerfi okkar hefur verið og er enn frekar ófullkomið. Venjulegur launamaður hefur stærstan hluta ævi sinnar verið að ávinna sér 56% rétt í lífeyriskerfinu, margir hverjir miklu minna af því að þeir hafa verið með óreglubundin laun. Þetta hefur því verið alls konar og það er ekki fyrr en nýverið að þessi möguleiki til að ná sér í greiðslur úr lífeyrissjóðum var aukinn upp í 76% með auknu framlagi frá atvinnurekendum, en það þarf 40 ár á vinnumarkaði til að ávinna sér þann rétt.
Ég hef verið þeirrar skoðunar að lífeyrisgreiðslur séu bara frestaðar atvinnutekjur. Þetta eru bara geymdar tekjur sem við nýttum ekki á þeim tíma sem við unnum fyrir þeim heldur vorum að geyma þær til elliáranna eða þegar við kæmumst á aldur. Hún vekur athygli þessi tafla sem fylgir frumvarpinu. Mig langaði að spyrja hv. þingmann um hana, hvaðan hún komi og hverjir hafi sannreynt þessar tölur. Ef þetta kostar ekki meira en 16 milljarða þá eru það allt aðrar tölur en mér hafa verið sagðar í gegnum tíðina, að þetta væri allt of dýrt fyrir samfélagið okkar, við værum að setja okkur á hausinn.