almannatryggingar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og ég tek undir hvert orð sem hann segir. Taflan er fengin frá þáverandi félags- og barnamálaráðherra, Ásmundi Einari Daðasyni, eftir að við sendum fyrirspurn til skriflegs svars til ráðherrans. Þannig erum við komin með þessar tölur og þessa töflu og ég kaus að vera ekkert að reyna að telja það allt upp hér sem í henni stendur, ég tel að það hefði ekki skýrt neitt. Ég vísa fólki bara á að skoða frumvarpið og töfluna sem fylgir með því að hún segir allt sem segja þarf um það hvernig komið er fram við fólk sem hefur áunnið sér þennan rétt með elju sinni og starfa í gegnum ævina.
Þó að hv. þingmaður hafi ekki nefnt það þá gleymdi ég kannski að segja það í ræðu minni áðan að svo langt er gengið að þegar við göngum okkar veg, erum komin undir græna torfu, þá er okkar áunni lífeyrissjóðsréttur ekki einu sinni erfanlegur nema að litlu leyti, nema að allt of litlu leyti. Það er annað þingmál sem Flokkur fólksins hefur mælt fyrir oftar en einu sinni þar sem kallað er eftir því að eignarréttarákvæði stjórnarskrár sé virt þannig að þetta sé viðurkennt sem framlag okkar í eigin þágu, af okkar eigin störfum, þó svo að við séum þvinguð með lögum til að greiða í lífeyrissjóð og fáum ekki val um að ávaxta féð öðruvísi.