almannatryggingar.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni síðara andsvar. Samtryggingarkerfi — já, rétt er það. Þetta er samtryggingarkerfi sem malar á bilinu 17–20 milljarða kr. hvern einasta mánuð. Það eru yfir 200 milljarðar á ári sem við erum að taka af launþegum landsins og leggja í lífeyrissjóði. Mér finnst virkilega ósanngjarnt, ef tala á um þetta sem framlag til samtryggingar, ef þú færð ekki að nota það sem samtryggingu fyrir þína eigin fjölskyldu þegar þú hrekkur upp af.
Mér finnst líka ósanngjarnt að halda að ef ég hverf með minn lífeyrissjóð séu ekki aðrir sem komi í staðinn. Ég er að vonast til þess að við höldum áfram að fjölga okkur og höldum áfram að dafna og að nýjar kynslóðir taki við. Ég mun aldrei samþykkja það að fráfarandi kynslóð, eldra fólk í dag, sé með bogin bök yfir því að gefið sé í skyn að ef þau fái ávöxt af erfiði sínu, það sem þau hafa lagt inn í lífeyriskerfið, muni það setja kerfið á hliðina. Það er alrangt eins og ég sé það.