152. löggjafarþing — 35. fundur,  8. feb. 2022.

almannatryggingar.

36. mál
[17:45]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Frú forseti. Þetta er frumvarp sem ég styð heils hugar, um frítekjumark vegna lífeyristekna. Ég vil byrja umræðuna á því sem nefnt var hér í andsvörum, samtryggingarkerfinu. Hversu mikið samtryggingarkerfi er þetta? Ég skal segja ykkur sögu, einfalda. Þegar ég lenti á örorku á sínum tíma fékk ég greiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins en það tók töluverðan tíma að fá greiðslur úr lífeyrissjóði. Síðan leið og beið, ég var með fjögur börn, veikur, og þá koma greiðslur frá lífeyrissjóðnum. Skuldir komnar, maður hugsar með sér: Ókei. Þá fæ ég bara eingreiðslu, frábært. Nú get ég gert upp skuldirnar. Og ég gerði það. Greiðslan dugði samt ekki að fullu fyrir þeim skuldum. Ég var alsæll í nokkra mánuði. Þá kom skerðingardagurinn mikli, sem var 1. ágúst ár hvert, hjá Tryggingastofnun ríkisins. Þau sögðu: Þú fékkst eingreiðslu frá Lífeyrissjóði verslunarmanna. Það verður til þess að við höfum ákveðið að taka af þér hverja einustu krónu í heilt ár. Það voru skilaboðin. Ég ákvað að reyna að vita hvort þetta gæti staðist lög, hvort þetta væri löglegt. Jú, þetta var fullkomlega löglegt en gjörsamlega siðlaust.

En haldið þið að málið hafi verið búið þá? Nei, það kom til vegna þess að þá var ég kominn á fastar greiðslur frá lífeyrissjóðnum. Hvaða áhrif hafði það á mínar örorkugreiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins? Jú, þær skertu þær um 38,9%. Það þýddi að ég var í sjálfu sér að borga, ef við uppfærum það, yfir 70% skatt af tekjum úr lífeyrissjóðnum. Setjum þetta í samhengi við hátekjuskatt og í samhengi við það sem við erum að tala um, samtryggingu. Þetta stenst ekki neina skoðun. Almannatryggingarnar eru ömurlegt bútasaumað skrímsli, meira og verra en ég held maður hefði nokkurn tímann getað lesið um í bók um Frankenstein. Og á hverjum bitnar það? Jú, það bitnar á veiku fólki sem getur ekki varið sig. Hver býr til kerfi til að níðast á veiku fólki eða slösuðu sem hefur ekki möguleika á að verja sig? Jú, ríkisstjórn eftir ríkisstjórn hefur búið þetta kerfi til og viðhaldið því.

Ef við tökum þetta frumvarp sérstaklega og tölum um að hækka frítekjumarkið úr 25.000 kr. í 100.000 kr., hverjum mun það skila mestum ávinningi? Það er ekkert flókið, konum á vinnumarkaði. Hvers vegna? Jú, vegna þess að þær hafa minni tekjur og hafa verið stopult úti á vinnumarkaðnum. Þar af leiðandi eiga þær minni lífeyrissjóð. Við erum að refsa þeim sérstaklega illa í þessu kerfi. Og síðan öryrkjum, eins og ég kom að áðan. Svo gleymist það alltaf inni í þessu kerfi að þetta eru ekki bara skerðingar upp á 38,9% hjá öryrkjum og 45,5% hjá eldri borgurum, það koma síðan keðjuverkandi skerðingar inn í þetta. Spurningin er: Í hvaða aðstöðu er viðkomandi einstaklingur? Á hann sína íbúð skuldlausa eða skuldar hann? Er hann á leigumarkaði? Er hann með sérstakar húsaleigubætur? Er hann með einhverjar aðrar sérstakar greiðslur sem skerðast krónu á móti krónu og valda keðjuverkandi skerðingum um allt kerfið?

Oft og iðulega hefur það komið upp að maður fær krónu inn í kerfið hérna megin. Maður hugsar með sér: Ókei, það hlýtur að bæta hag minn. En svo uppgötvar maður að maður er eiginlega verr staddur vegna þess að 2 kr. hurfu hinum megin, þær fara í gegnum kerfið og valda keðjuverkandi skerðingum þannig að viðkomandi tapar á því að taka við þessari einu krónu. Þetta vita þau sem viðhalda þessu kerfi og þau vita það sem verja þetta kerfi. Hvers vegna í ósköpunum vilja þau hafa þetta svona? Vegna þess að þau segja að annars fari fjárhagur ríkisins alveg á hliðina. En hvað erum við að tala um í þessu tilfelli? 16 milljarða, í heild, ef við tækjum allt kerfið út, 42 milljarða. Setjum þetta í samhengi við það sem verið er að gera í Covid-málunum. Er það að setja okkur öll algjörlega á hausinn? Nei, en að leyfa fólkinu að eiga þennan lögþvingaða sparnað sem tekinn er eignarnámi í stað þess að nota hann í þeim tilgangi að minnka greiðslur frá ríkinu, það á að setja okkur á hausinn. Það var því eiginlega vonlaust að fara í mál vegna þess á sínum tíma að verið væri að skerða lífeyrissjóðinn. Það er ekki verið að skerða lífeyrissjóðinn en það er verið að nota lífeyrissjóðinn til að skerða bætur almannatrygginga og aðra bótaflokka. Allar skattskyldar tekjur skerða alls konar bótaflokka. Þetta sýnir sig svart á hvítu þegar ríkisstjórn eftir ríkisstjórn er að beita þessum óyndisúrræðum og misnota lífeyrissjóðina gróflega á þennan hátt. Lífeyrissjóðirnir eru ævisparnaður fólks, en þarna telur ríkið sig hafa fundið breiðu bökin. Þarna er fólkið sem á að hafa getu til að greiða yfir 70% í skatt. En er það svo? Jú, einhverjir geta staðið undir því, þeir sem eru með hæstu tekjurnar.

Það kom fram hjá hv. þm. Ingu Sæland að meðaltekjur í landinu væru um 700.000 kr. Meðaltekjur í landinu voru í júlí síðastliðnum 794.000 kr. og eru nú þegar komnar vel yfir 800.000 kr., meðaltekjur. Það segir okkur líka þá sögu hvernig í ósköpunum við getum ætlast til þess að einstaklingur sem slasast, bara venjulegur verkamaður, lifi af einhverjum 260–270.000 kr. útborguðum með lífeyrissjóðnum. Kona sem fær 60.000 kr. úr lífeyrissjóði fær í kringum 240–250.000 kr. á mánuði eftir skatta í heildartekjur frá lífeyrissjóði og Tryggingastofnun. Það sýnir okkur svart á hvítu að þetta kerfi okkar er fjárhagslegt ofbeldi af verstu gerð.

Við horfum til þess að nú er verðbólga 5,7%. Um síðustu áramót var verið að hækka samkvæmt vísitölu. Það gleymist alltaf í þessu samhengi, þegar verið er að hækka vísitölu í almannatryggingakerfinu, að það er verið að borga afturvirkt fyrir árið. Það sem þú varst að fá um síðustu áramót á að gilda afturvirkt fyrir síðasta ár. Þar af leiðandi er byrjað að taka strax af þessum hópi í janúar og hann þarf að þrengja sultarólina út allt árið þangað til hann fær aftur í mesta lagi verðbólguna, ef hann nær því.

Ég segi: Það væri óskandi og ég vona heitt og innilega að þetta frumvarp verði samþykkt. Loksins. Þetta eru mjög hógværar fyrstu kröfur, 100.000 kr., bara fyrsta stigið í því að hætta í eitt skipti fyrir öll að leggja skatt á og skerða lífeyrissjóðstekjur okkar um 70% og jafnvel upp í 100%. Það er algerlega ólíðandi. Með því að nota það ásamt öðrum skerðingartólum sem ríkisstjórnir hafa búið til, í sambandi við sérstaka húsaleigu og alls konar styrki, geta skerðingarnar farið alveg upp í 100%. Látið mig vita það. Ég veit það. Ég hef orðið fyrir því. Ég þekki það af eigin raun. Að segja að lífeyrissjóðskerfið sem er núna — getið þið ímyndað ykkur hver heildarágóði lífeyrissjóðskerfisins var á síðasta ári? Hann var 1.000 milljarðar. Og hverjir eiga þetta kerfi? Jú, það erum við, fólkið í landinu. Það erum við sem eigum að njóta ávaxtanna af því. Þetta er ekki byggt upp sem gróðalind fyrir ríkisstjórn eftir ríkisstjórn.