152. löggjafarþing — 35. fundur,  8. feb. 2022.

almannatryggingar.

36. mál
[17:55]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans málflutning hér. Ég er nú búinn að þekkja hv. þingmann í talsverðan tíma og löngu áður en hann settist á hið háa Alþingi og hann hefur verið sannur í sínum málflutningi í gegnum tíðina. Það sem ég er að velta fyrir mér og það sem kom auðvitað bara fram í máli hv. þingmanns er vanskapnaðurinn í kringum allar þessar tekjutengingar sem eiga sér stað í bótakerfinu okkar og tilfærslukerfunum sem er auðvitað bara grafalvarlegur. Við erum að setja í það minnsta Norðurlandamet í öllum þessum skerðingum.

Það er eðlilegt að lífeyrissjóðir safni aurum því að þetta er söfnunarsjóðskerfi sem við búum við. Við erum að safna í sarpinn til að eiga þegar við förum á eftirlaun Það eru síðan til annars konar kerfi eins og gegnumstreymiskerfi þar sem ríkissjóður borgar fólki eftirlaun. En það eru alltaf að verða færri og færri skattgreiðendur því að öldruðum er að fjölga þannig að þetta söfnunarkerfi er hið ágætasta kerfi í sjálfu sér. En þegar skerðingar eru svona miklar þá breytist það bara í einhvern vanskapnað.

En mig langaði að spyrja hv. þingmann. Uppruni teknanna virðist skipta máli í þessu. Þeir sem greiða í lífeyrissjóð eru skertir í bak og fyrir en þeir sem gátu valið að greiða í séreignarsjóð eru ekki skertir og þeir sem gátu safnað peningum undir koddann eru heldur ekki skertir. Það virðist því vera í þessu kerfi okkar að uppruni tekna skipti máli. Hvað finnst honum um það?