152. löggjafarþing — 35. fundur,  8. feb. 2022.

almannatryggingar.

36. mál
[17:58]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Guðbrandi Einarssyni fyrirspurnina. Jú, við þekkjumst vel frá fyrri tíð í Verslunarfélagi Reykjavíkur og Verslunarmannafélagi Suðurnesja sem viðkomandi var í. Ég er algerlega sammála honum, ég get ekki annað en verið innilega sammála því að það segir sig auðvitað sjálft hvernig við meðhöndlum ýmsar tekjur. Það virðist vera landlægt hjá ríkisstjórninni að allar skattskyldar tekjur valda skerðingum í þessu kerfi. Það segir okkur ekki að það sé vandamálið heldur er kerfið sjálft, hvernig það er byggt upp, aðalvandamálið. Ég skal taka heils hugar undir það og ég er algerlega sammála hv. þingmanni í því að lífeyrissjóðirnir eigi að ávaxta sitt fé og gera það vel og ég er ánægður með þúsund milljarða gróðann. En ég er ekki ánægður með að 70–90% renni til ríkisins. Tilgangurinn var ekki að byggja þetta kerfi á þennan hátt.

Ef við tökum sem dæmi það sem var bent á að þú færð 56% af áætluðum tekjum þegar þú ferð á eftirlaun. Ef þú ert með 400.000 kr. í laun þá eru þetta rúmar 200.000 kr. Hvernig í ósköpunum á að fara að skerða þetta þegar þú ert með helmingi lægri laun? Er ekki lágmarkið að bíða með skerðingar þar til þú ert kominn í meðallaun eða þau laun sem þú varst með áður? Af hverju þarf að skerða við helmingi lægri laun? Hvernig í ósköpunum áttu að reyna að lifa á helmingi lægri launum? Sumir geta verið með alls konar skuldbindingar þó að þeir séu komnir á eftirlaun. Það segir sig sjálft að sumir fóru seinna á vinnumarkaðinn, eiga ekki eins sterka lífeyrissjóði og eru jafnvel steypa sér í skuldir á þessu tímabili. Þeir þurfa því að eiga þessar litlu upphæðir óhreyfðar. (Forseti hringir.) En þær eru skertar í bak og fyrir.