152. löggjafarþing — 35. fundur,  8. feb. 2022.

almannatryggingar.

36. mál
[18:00]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir þetta svar. Uppruni tekna virðist skipta máli í þessu öllu og ég velti bara fyrir mér: Á það að vera þannig að uppruni tekna skipti máli? Af hverju á að skerða sumar tekjur en ekki aðrar? Ég velti fyrir mér annars konar fyrirkomulagi. Auðvitað þarf ríkissjóður og velferðarsamfélagið okkar að hafa tekjustofna sem gera það að verkum að við getum haldið úti öflugu velferðarkerfi en það er einhvern veginn þannig að við erum að skattleggja bara alls konar. Væri möguleiki að koma þessu bara í eitt kerfi þannig að við hættum að láta uppruna tekna skipta máli? Hér nefnir hv. þingmaður einstakling sem fær 200.000 kall í eftirlaun miðað við 400.000 kr. laun sem hann hafði kannski haft sem verkamaður eða verkakona. Hann fengi svo 200.000 kall út úr almannatryggingakerfinu og þá væri brúttótalan samtals 400.000. Gætum við meðhöndlað þetta innan skattkerfisins eins og aðrar tekjur þannig að þú fengir bara allar þær bætur sem þú átt rétt á og síðan væru þær meðhöndlaðar í skattkerfinu eins og aðrar tekjur? Við gætum þá auðvitað bara breytt skattkerfinu til að afla þeirra tekna sem ríkissjóður þarf með alls konar skattþrepum, bæði til að jafna kjörin og til að afla ríkissjóði tekna. Það er hægt að vera með fleiri þrep í skattkerfinu en bara þau sem fyrir eru núna.