152. löggjafarþing — 35. fundur,  8. feb. 2022.

almannatryggingar.

36. mál
[18:02]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Guðbrandi Einarssyni fyrir andsvarið. Ég verð að segja að já, þetta er auðvitað fáránlegt kerfi. Nú er ég með þingfararkaup og svo fæ ég aukalega sem þingflokksformaður og þetta er eins og það væri notað til að skerða þingmannalaunin. Hverjum dytti það í hug? Eða að ég væri venjulegur verkamaður og fengi aukavinnu í búð, ég væri smiður og það sem ég fengi í búðinni myndi skerða hitt eða öfugt. Það dytti engum í hug að búa til svona kerfi, ekki nokkrum manni. En þetta er það sem við gerum. Þetta er svolítið gott dæmi. Ef við tökum 400.000 kallinn er 56% af því 212.000 kall. Hvað er viðkomandi að fá þegar hann er kominn með það? Ef rétt væri gefið ætti hann að vera með 500.000. Spáið í þetta. En hvað er þessi einstaklingur að fá í raun og veru? 300.000 og 250.000 þegar búið er að skatta. Hvar er lífeyrissjóðurinn? Hann er farinn. Þarna eru nefnilega skattar. Hann getur meira að segja verið verr staddur ef hann er á leigumarkaði með sérstakar húsaleigubætur eða eitthvað annað eða ef hann er með einhverja styrki. Fullt af styrkjum sem eru í kerfinu hækka aldrei. Það hafa verið sömu styrkir síðan kannski 2005, 2006, 2007, og þeir hækka aldrei um krónutölu þannig að þeir hafa alltaf lækkað og skerðast svo í þokkabót. Þess vegna er ofboðslega mikilvægt og lífsnauðsynlegt að endurskoða þetta kerfi og það er verið að tala um það. En til að endurskoðun á þessu kerfi virki verða hagaðilar að koma að því, eldri borgarar og öryrkjar. Það verður að hlusta á þá og þeir eiga að leiða þessa endurskoðun vegna þess að annars verður búið til annað kerfi og jafnvel verra. (Forseti hringir.) Ég óttast það helst ef þessir aðilar fá ekki að vera með.