almannatryggingar.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Ingu Sæland fyrir greinargóða lýsingu á því frumvarpi sem hér er til umræðu, hv. þm. Guðmundi Inga Kristinssyni fyrir sitt mál og hv. þingmönnum öðrum sem hér hafa tekið til máls. Ég er þeirrar skoðunar og ætla að fá að hafa þá skoðun, alla vega meðan ég telst nýr þingmaður, að við ættum að taka — og það rúmast kannski ekki innan þessara tveggja mínútna sem gefnar eru undir liðnum störf þingsins einu sinni, tvisvar í viku að skýra það sem ég er að hugsa hér. Ég tel að við ættum að endurskoða störf þingsins og gera þau skilvirkari og nútímalegri. Við erum í 19. aldar byggingu og stundum er eins og við þurfum að laga okkur að byggingunni frekar en að byggingin lagi sig að okkur. Ég tel að við ættum að geta komið okkur upp kerfi þar sem við gætum komið athugasemdum okkar eða tilsvörum á framfæri úr sætum okkar, þyrftum ekki að ganga yfir þvera hæðina til að segja örfá orð í andmælum eða tilsvörum. Ég tel að við ættum að geta sett hér upp á einhvern skjá punktana okkar, rétt eins og við gerum á fjarfundum ef við viljum koma einhverjum hugmyndum á framfæri þannig. Þessu væri síðan haldið til haga og allt væri það rafrænt skráð með myndavélum og tölvum, einkum og sér í lagi þó til að tíminn nýttist okkur betur í að einbeita okkur að þeim aðalatriðum sem hér eru til umræðu. Í fyrsta lagi að treysta þá tekjustofna ríkissjóðs sem við höfum nú þegar og einbeita okkur að því að fjölga þeim stoðum, þeim tekjustofnum, sem myndu gera okkur svo miklu auðveldara að líta á það sem sjálfsagðan hlut, algjörlega sjálfsagðan óumdeilanlegan hlut, að framkvæma það sem við erum að tala um hér í dag. Og kosti það einungis 16 milljarða til viðbótar við það sem nú er þá eru það slíkir smámunir í 1.000 milljarða samhenginu sem við erum að hreyfa okkur í á ári hverju að það ætti að vera algerlega sjálfsagður hlutur að kippa þessu í liðinn. Samfélagið á að rísa undir sæmdarheitinu velferðarsamfélag. Við erum, eins og margoft hefur verið sagt hér í þessum sal og annars staðar, meðal ríkustu þjóða heims. Við erum ljónheppin með staðsetningu okkar á hnattkúlunni, með auðlindirnar sem okkur hafa hlotnast, grænu orkuna sem allir vilja fá, landgæðin sem allir vilja sjá, fiskimiðin og hreinleika lofts, láðs og lagar. Þetta er það sem allir þrá. Við höfum það í hendi okkar sem allar aðrar þjóðir þrá og sælast nú eftir. Ein af stóru áskorunum samtímans og framtíðarinnar er að standa vörð um þessi gæði, stundum í veðurfari sem ekki þykir mjög ákjósanlegt en á móti kuldanum kemur jarðvarminn og vatnið og allt sem aðrir öfunda okkur af.
Þetta segi ég nú bara vegna þess að það fer of mikill tími hér í þessum sal í að rífast um skiptingu kökunnar en ekki nægur tími í að hugsa hvernig við stækkum hana og hvernig við fækkum rifrildum um smáu sneiðarnar eða stóru sem við þurfum að tryggja. Ég vona að á þetta verði hlustað af nýjum þingmönnum og að við bætum vinnulagið hér og gefum okkur meiri tíma til að einbeita okkur að aðalatriðunum sem eru þau að velferðarsamfélagið krefst þess að það sé ekki kvíðaefni að eldast eftir að hafa stritað í hæsta matarverði heims, hæstu sköttum og ýmsu sem við höfum því miður ekki náð nægilega góðum tökum á.
En hér eru að verða til nýjar búgreinar eins og áður hefur verið sagt. Ferðaþjónustan hefur skapað gríðarleg verðmæti þegar hún fær að starfa í eðlilegu umhverfi. Við ættum að einbeita okkur að því að það sem við eigum og höfum skili okkur eðlilegri ábata, að engin trix í útlöndum geti komið í veg fyrir að greiddur sé eðlilegur ábati af grænu orkunni sem við erum aðallega að selja útlendingum, að fiskurinn okkar sameiginlegi skili okkur hæstu mögulegu rentu og svo er það eldið sem á næstu misserum er að verða jafn dýrmætt og verðmætt og sjálfur fiskkvótinn sem allt snýst um í Verbúðinni, þeirri góðu vitundarvakningu um grátbroslega tilurð kerfisins eins og það er á Íslandi. Hvernig eru refirnir skornir? Hvernig er jafnvægið milli frelsis og ábyrgðar? Þetta eru stóru spurningarnar.
Það frumvarp sem hér er til umræðu er borið fram í fjórða skipti. Þetta er svo sjálfsögð og eðlileg og sanngjörn breyting til betri vegar að ég vona heitt og innilega að það þurfi ekki að mæla fyrir þessu máli í fimmta skipti. Það verður ekkert gefist upp í baráttunni fyrir sanngjarnara og réttlátara samfélagi, að breyta kvíðakvöldinu í tilhlökkunarkvöld þar sem þú ert verðlaunaður fyrir að hafa tekið þátt í að reisa öflugt velferðarsamfélag og innviði og færð eðlilega hlutdeild í því velferðarsamfélagi. Það held ég að verði voðalega erfitt að rífast um mikið lengur. Tökum okkur saman í andlitinu, samþykkjum þetta frumvarp, þetta fyrsta skref í átt að sjálfsögðu réttlátu almannatryggingakerfi og horfum síðan til heildarendurskoðunar þessa kerfis sem þegar er hafið, að það muni bæta það sem upp á vantar svo að við getum horft í spegilinn og sagt: Við erum stoltir þegnar í nútímalegu velferðarsamfélagi á Íslandi.