almannatryggingar.
Virðulegi forseti. Hv. þingheimur og þið Íslendingar góðir sem horfið á mig hér. Ég heiti Tómas, kallaður Tommi, og er kominn aftur í pontu til að ræða um mjög stórt og mikið sanngirnismál. Við erum að mæla með því að frítekjumark þeirra sem fá úr lífeyrissjóði og þurfa á sama tíma að fá ellilífeyri verði hækkað úr 25.000 kr. í 100.000 kr. Ég hef ekki enn þá hitt þann mann sem reynir að telja mér trú um það að einstaklingur geti lifað á 260.000–270.000 kr. á mánuði. Með þetta óréttláta kerfi sem nú er, með frítekjumark upp á 25.000 kr., þýðir það að sá sem fær 270.000 kr. í ellilífeyri hefur 295.000 kr. til skiptanna. Eftir það, ef hann fær meira úr lífeyrissjóðnum, þá lækkar talan sem hann fær frá Tryggingastofnun og hann fær alltaf sama 295.000 kallinn. Þetta getur ekki verið óréttlátara. Hver getur lifað af 295.000 kr. á mánuði í þessu þjóðfélagi sem við búum í í dag? Ég veit ekki. Ég hef ekki enn þá hitt þann mann.
Mig langar aðeins til að ræða hérna um lífeyrissjóði og samtryggingu, af því að það er búið að tala hérna um það. Þetta er svolítið lúmskt. Í gamla daga man ég að var banki, sem ég held að hafi heitið Iðnaðarbankinn, sem auglýsti gjarnan vexti og vaxtavexti og vexti ofan á það. Halló. Ég var að reikna út að gamni mínu að einstaklingur sem hefur 400.000 kr. í mánaðartekjur, sem eru nú ekki há mánaðarlaun, borgar í lífeyrissjóð, með framlagi vinnuveitanda hans og sínu eigin framlagi, 60.000 kr., sem eru 15%, kannski 15,5% meira að segja. 60.000 kr. á mánuði í lífeyrissjóð. Þessar 60.000 kr. á mánuði í 40 ár á 3% vöxtum þýða 99 milljónir sem hann er búinn að safna sér á þessum tíma. 99 milljónir er einstaklingur, sem er búinn að vinna frá því að hann er 25 ára þangað til að hann er 65 ára gamall, búinn að safna sér með vöxtum og vaxtavöxtum og vöxtum ofan á það, 99 millj. kr. En athugið eitt. Það er ekki til sá lífeyrissjóður sem ég hef heyrt talað um sem gumar ekki af því að hafa a.m.k. 5% ávöxtun á höfuðstól þannig að ef við tökum þessar sömu 60.000 kr. fyrir 400.000 kr. mánaðarlaunin þá gerir uppsafnaður lífeyrissjóður 255 milljónir. Pælið í því, 255 milljónir með því að leggja 60.000 kr. á mánuði í bankann og fá 5% vexti. Ef aftur á móti manneskja sem hefur 600.000 kr. á mánuði í laun, sem er ekki há upphæð heldur því að meðallaun í dag eru 700.000 kr., og sparar í 40 ár á 3% vöxtum, sem eru ekki háir vextir og ég held að allir lífeyrissjóðir myndu geta lofað því að skaffa 3% vexti, á 147 milljónir. En ef það væru 5% þá væru það 384 milljónir sem hann ætti eftir 40 ára sparnað með þessum skilyrðum, 5% vextir og vaxtavextir og vextir ofan á það. Þannig að ég segi: Samtryggingin er mjög ósanngjörn miðað við þetta, að menn fái 56% af mánaðarlaunum sínum útborguð úr lífeyrissjóðunum loksins þegar þeir byrja að taka úr honum. Það er einhver vitleysa í þessu reikningsdæmi. Ég vil endilega að þessi uppsafnaði sparnaður verði erfanlegur, hver króna. Það er ósanngjarnt að vinna og eiga tugi milljóna uppsafnaða og það hverfur bara eins og dögg fyrir sólu. Það eru til 7.000 milljarðar í lífeyrissjóðunum í dag. Þeir hljóta að geta fundið eitthvað út úr þessu. Takk fyrir mig, góða þjóð.