störf þingsins.
Virðulegi forseti. Hér inni er að stórum hluta tekist á um fé til hinna ýmsu málaflokka. Í eina tíð var sauðfé á fæti gjaldmiðill okkar í viðskiptum. Síðan kom til gullfótur, en sá er ekki lengur okkar viðmið. Tökum nú örlítið hugarflug saman og ímyndum okkur kunnuglegt sauðfé, nú risavaxinn ferfætling, íslenskan sauð, þjóðarsauð. Þjóðarsauðurinn er hlaðinn þungum og margvíslegum böggum og þeim fjölgar frá ári til árs. Þessi þjóðarsauður gengur ekki á neinum gullfótum. Einn fótinn mætti kannski nefna álfót, grænan álfót sem táknmynd grænu orkunnar sem hér knýr stóriðjuna. Annan framtíðarfótinn mættum við vissulega kenna við gull, þ.e. gull framtíðarinnar, hvíta gullið sem svo er nefnt, sjálft ómengaða hreina og verðmæta drykkjarvatnið sem hér rennur til sjávar. Þriðja fótinn aftanverðan skulum við hafa hefðbundinn kjöt- og fiskfót, táknmynd matarkistunnar okkar lífrænu grænu og vænu. Fjórði fóturinn er síðan gervifótur frá Össuri, táknmynd öflugrar nýsköpunar og arðbærs útflutnings. Þá er það fimmta fóturinn sem nýlega bættist við, það er hrossfótur, túrhestafóturinn, sem heldur betur megnaði að létta sívaxandi byrðar fyrrum ferfætlings. Hrútur þessi kann heldur betur að setja undir sig hornin og hausinn ef svo ber við. Hann er nefnilega skapandi skepna, þessi þjóðarsauður. Og við þjóðarsauð látum við auðvitað ríma orðið þjóðarauð, þversummu þess mannauðs sem við búum yfir. Megi nú vor skapandi mannauður efla enn sinn sköpunarkraft svo fjölga megi á komandi árum og áratugum styrkum fótum þessarar fjölþættu kynjaskepnu sem þjóðarsauðurinn okkar er.
Gerum störf þingsins skilvirkari, virðulegi forseti, svo okkur gefist rýmri tími til skapandi umræðu og hugarflugs um nýjar stoðir íslensks atvinnulífs svo tryggja megi öllum mannsæmandi líf á Íslandi.