störf þingsins.
Herra forseti. Við þurfum aðeins að ræða Noreg. Noregur er eins og önnur ríki Norðurlandanna forysturíki í loftslagsmálum en á sama tíma eitt ágengasta olíuleitarríki Evrópu, ekki bara eitt ágengasta heldur það allra ágengasta. Þetta kom skýrt fram í skýrslu sem kom út í gær og var gefin út af Oil Change International þar sem var farið yfir tölulegar staðreyndir hjá frændum okkar hinum megin Atlantshafið. Síðustu tíu árin hafa norsk stjórnvöld gefið út 700 leyfi til leitar að olíu og gasi í norskri lögsögu sem er meira en 47 árin þar áður. Þau olíu- og gassvæði sem þegar hefur verið gefið leyfi til að vinna úr myndu losa þrjú gígatonn af koltvísýringi sem er sextíuföld losun Noregs sjálfs. Og nú eru norsk stjórnvöld að veita leyfi fyrir tímasprengju nyrst í Barentshafi, svokallað Wisting-svæði sem gæti losað 200 milljón tonn af koltvísýringi ef sú olía myndi öll líta dagsins ljós og henni yrði brennt.
Herra forseti. Það er vegna Noregs sem Ísland þarf að banna olíuleit innan íslenskrar lögsögu, það er vegna Noregs og annarra slíkra ríkja sem við þurfum að ganga í alþjóðlegt samband ríkja sem hafa snúið baki við olíu- og gasleit sem ekki var hægt á síðustu loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna vegna þess að ríkisstjórnin fékk sig ekki til að samþykkja frumvarp mitt um olíuleitarbann síðastliðið vor. Þannig og aðeins þannig geta íslensk stjórnvöld mætt á fundi ásamt Danmörku og Svíþjóð, sem hafa gengið í þetta bandalag, og sagt: Elsku Noregur, hættu þessu rugli.