störf þingsins.
Virðulegi forseti. Í gær greindist mikill fjöldi Covid-smita á Íslandi. Innlögnum á spítalann vegna veikinda hefur þó sem betur fer ekki fjölgað og eru um 33 sjúklingar inniliggjandi vegna Covid. Líklegt má telja að innan fárra vikna hafi ómíkron-afbrigði Covid tekið yfir og smitum fari að fækka í samfélaginu. Það er mín von að heimsfaraldurinn, sem haldið hefur okkur í heljargreipum í tvö ár, verði senn á enda. Ég ætla því að leyfa mér að vera bjartsýnn. Það er staðreynd að okkur Íslendingum hefur gengið vel í samanburði við aðrar þjóðir og því ber að fagna.
Nú verðum við að setja áhersluna á stóru verkefnin sem eru fram undan. Hagvöxtur hér á landi var um 5% í fyrra og efnahagslífið hefur verið að taka vel við sér en verðbólgan er verulegt áhyggjuefni og einnig er atvinnuleysi hér of hátt, sérstaklega þegar litið er til Suðurnesjanna þar sem það mælist rétt undir 10%. Þó er það svo að mörgum fyrirtækjum gengur illa að fá fólk til starfa og því fer ekki alveg saman hljóð og mynd.
Á Íslandi hefur hlutfall landsmanna sem eru virkir á vinnumarkaði verið með því hæsta sem gerist í vestrænum heimi. Atvinna er jú velferðarmál og grundvöllur aukinna lífsgæða. Ég tel því mikilvægt að við endurskoðum þau úrræði sem bjóðast þeim sem falla út af vinnumarkaði sem þátt í kröftugri viðspyrnu eftir faraldurinn. Sérstaklega þarf að huga að stuðningi við ungt fólk sem hefur hvorki verið í námi né á vinnumarkaði. Við þurfum að leita leiða til að auka tækifæri þeirra til að efla drauma sína, efla trú sína á eigin getu, því að þrátt fyrir tímabundin áföll eru tækifærin hér á landi óþrjótandi til framtíðar.