152. löggjafarþing — 36. fundur,  9. feb. 2022.

störf þingsins.

[15:13]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Virðulegur forseti. Við skulum spóla aðeins aftur í tímann, um fimm mánuði eða svo. Það er seinni partur ágústmánaðar í fyrra í landi tækifæranna. Stjórnmálaflokkur birtir auglýsingu úti um allt til að ná til kjósenda, m.a. á heimasíðu sinni og samfélagsmiðlum og flettiskiltum. Auglýsingin er með stríðsletri: Lægstu vextir í sögunni. Hvorki meira né minna, lægstu vextir í sögunni. Þeir hafa verið ánægðir með sig á auglýsingastofunni þegar þessi texti fæddist því að hann er vissulega grípandi. Látum það samt liggja á milli hluta hversu mikil sögufölsun það er að eigna sér vaxtalækkunarferlið því að hagfræðisnilldin fæddist ekki í heilabúum snjallra manna í fundarherbergi í Valhöll heldur átti sér að mestu náttúrulegri orsakir í veiru sem varð að heimsfaraldri. Engu að síður var það svo að Sjálfstæðisflokkurinn, sem stundum kennir sig við ábyrgð og efnahagsmál, trommaði áfram möntruna um að Ísland væri skyndilega orðið að einhverri vaxtaparadís, lægstu vextir í sögunni. Stýrivextir voru þá 1% og höfum í huga að þetta var fyrir fimm mánuðum. Það tók okkur fimm mánuði að fara úr stýrivöxtum upp á 1% og í 2,7% og ekki er óvarlegt að ætla að vextirnir hækki enn meira. Seðlabankinn er sjálfstæð stofnun og bregst við ástandinu með þeim tækjum og tólum sem bankinn á. Orð mín beinast ekki að bankanum heldur að ábyrgð þeirra stjórnmálamanna sem selja almenningi þá hugsun í aðdraganda kosninga að vaxtalögmáli íslensku krónunnar hafi endanlega verið kippt úr sambandi. Afleiðingin er að sjálfsögðu sú að fólk tekur óþarfa áhættu í skuldsetningu og situr uppi með húsnæðislán sem hafa hækkað um tugi þúsunda um hver einustu mánaðamót og ekki enn búið að flauta til leiksloka. Viðreisn benti aftur og aftur á þetta í kosningabaráttunni: Við borgum hærri vexti á Íslandi en í nágrannalöndunum. Það þurfti heimsfaraldur þar sem heilu samfélögunum var lokað og allt sett í lás um allan heim til að Sjálfstæðisflokkurinn gæti barið sér á brjóst og auglýst af miklum móð: Lægstu vextir í sögunni. Það ástand varði í fjóra mánuði. Ísland var land vaxtatækifæranna í fjóra mánuði.