störf þingsins.
Herra forseti. Þessi lýsing hv. þm. Sigmars Guðmundssonar er nefnilega kjarni málsins. Ríkisstjórnin gaf óraunhæfar væntingar um það að almenningur í landinu væri staddur allt í einu í einhverjum nýjum veruleika, veruleika sem er svipaður og við þekkjum í nágrannalöndunum. Við værum með öðrum orðum komin inn í lágvaxtaumhverfi. Láir einhver ungu fólki það, sem vildi kaupa sér íbúð, þótt það hafi miðað sínar ráðagerðir við þennan veruleika? Núna talar hins vegar Seðlabankinn um að það þurfi að hækka vexti og hefur hækkað vexti um 2 prósentustig á mjög skömmum tíma, 0,7 prósentustig í morgun. Spár Seðlabankans sem hafa yfirleitt verið of varfærnar gera ráð fyrir 5,8% verðbólgu. Þetta er hinn nýi veruleiki. Seðlabankastjóri sagði vissulega í morgun líka að Seðlabankinn bæri ekki ábyrgð á misskiptingu og hefði hana ekki í huga. Það er alveg hárrétt. En það gera stjórnvöld sannarlega. Stjórnvöld hafa nefnilega ríku hlutverki að gegna þegar kemur að baráttunni gegn ójöfnuði; með réttlátu skattkerfi, félagslegu húsnæði, stuðningi við barnafjölskyldur og öflugar almannatryggingar. Þetta skilja ríkisstjórnir þeirra landa sem við berum okkur saman við, hvort sem við horfum til Þýskalands, Bretlands, Spánar eða víðar. Þar er núna verið að hefja aðgerðir sem tímabundið munu létta undir með þeim sem verst munu verða fyrir þessari kórónuveirukrísu á komandi mánuðum.
Við í Samfylkingunni höfum ásamt fleiri flokkum lagt fram þingsályktunartillögu um mótvægisaðgerðir gegn þessu og við hljótum að láta í okkur heyra og krefjast þess að ríkisstjórnin bregðist hratt við.