152. löggjafarþing — 36. fundur,  9. feb. 2022.

störf þingsins.

[15:21]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur kastað stríðshanskanum og ákveðið að hækka vexti bankans um 0,75 prósentustig, úr 2% í 2,75%. Löðrungurinn með stríðshanskanum mun smella fast og illa á þeim sem brutu svo skelfilega af sér að taka óverðtryggð lán með breytilegum vöxtum. Fyrir það verður að refsa vel og vendilega með tugþúsunda króna hækkunum á lánum þeirra á mánuði. Spádómsgáfa Seðlabankans um þróun verðbólgu er víðfræg fyrir það að standast ekki og hún verður eftir þennan þarfa löðrung á húsnæðislánaskuldaranum bara 5,8% á fyrsta fjórðungi ársins og bara 5% fram eftir þessu ári. Þá fer fjárhagslega vaxtaofbeldið að hjaðna og verðbólgan hægir á sér og verðhækkanir húsnæðis og alþjóðlegar verðhækkanir fjara út. Hið fræga verðbólgumarkmið Seðlabankans næst þó ekki fyrr en undir lok spátímans eða sennilega ekki í náinni framtíð. Seðlabankinn setti út vaxtaöngul og beitan var lágir og viðráðanlegir vextir. Unga fólkið beit á til að kaupa sér heimili og sá fram á að geta greitt lánin niður í stað þess að vera með verðtryggð lán sem hækka og hækka. Í kjarasamningum í haust verður vonandi gerð krafa um hækkun launa þannig að launahækkanir standi undir kostnaði vegna vaxtahækkana. Bankar og önnur fjármálafyrirtæki græða á tá og fingri. Heimili sem áður höfðu kannski eina maltflösku eða lýsisflösku í ísskápnum — þar verður ekkert. Þeir verst settu sitja eftir. Og hvað er verið að bjóða upp á? Jú, það er verið að bjóða upp á það að fólk, ungt fólk sem trúði því statt og stöðugt að það væri að fá viðráðanlega vexti og gæti eignast húsin sín, á það á hættu að missa þau og lenda aftur á okurmarkaði leiguhúsnæðis.