störf þingsins.
Herra forseti. Rétt er gengið yfir landið skaðaveður sem mildi er að olli ekki meira tjóni en varð. Það er ekki síst að þakka góðum viðbúnaði og viðvörunum að þessu sinni. Við vorum enn og aftur rækilega minnt á að grunninnviðir okkar, til að vernda líf og heilsu fólks, eru götóttir. Of margir staðir á landinu búa ekki við örugga læknisþjónustu og stöðuga viðveru lækna og hjúkrunarfræðinga til að geta brugðist strax við ef fyrirvaralítið koma upp alvarleg veikindi eða slys. Einn sá staður er Grundarfjörður. Þar varð vinnuslys á mánudaginn, einmitt þegar ófært var vegna óveðurs og læknar sem áttu að sinna íbúum hluta vikunnar voru ekki komnir á staðinn. Sem betur fer fór betur en á horfðist og atvikið reyndist ekki eins alvarlegt og hefði getað orðið. Eftir stendur enn ein áminningin um að það er ekki bjóðandi fyrir slík samfélög að búa ekki við örugga og viðvarandi læknisþjónustu fyrir íbúana og fyrirtækin sem þar starfa. Ofangreint slys varð hjá G.Run. þar sem starfa á milli 90 til 100 manns. Það er ábyrgðarhluti að geta tryggt öryggi og velferð starfsfólks í slíkum fyrirtækjum. Úr þessu þarf að bæta nú þegar og tryggja læknisþjónustu í Grundarfirði og á öðrum þeim stöðum á landinu þar sem eins háttar. Það er mikilvægur þáttur í að tryggja búsetuöryggi og góð lífsgæði í landinu öllu.