152. löggjafarþing — 36. fundur,  9. feb. 2022.

störf þingsins.

[15:32]
Horfa

Kjartan Magnússon (S):

Herra forseti. Ég vil byrja á að lýsa yfir sérstakri ánægju minni með ræðu þess sem talaði hér á undan mér, hv. þm. Tómasar Möller. Það sem ég ætla að gera hér að umtalsefni er ekki alveg ósvipað. Mér fannst athyglisvert að hlýða á umræður í þessum sal nýlega þar sem þingmenn Samfylkingarinnar gagnrýndu harðlega að ákveðið skyldi vera að fjölga ráðherrum um einn, úr 11 í 12. Mér fannst sú gagnrýni kyndug í ljósi þess að sömu þingmenn beittu sér fyrir því árið 2011 að borgarfulltrúum í Reykjavík skyldi fjölgað með lagaboði um 53%, við samþykkt nýrra sveitarstjórnarlaga. Var það gert þótt engin nauðsyn væri til að fjölga borgarfulltrúum í Reykjavík og þótt sýnt hefði verið fram á að fjöldi umbjóðenda á bak við hvern borgarfulltrúa í Reykjavík var mjög svipaður og í höfuðborgum Norðurlandanna og öðrum borgum sem við berum okkur gjarnan saman við. Fjölgun borgarfulltrúa í Reykjavík um 53%, úr 15 í 23, hefur engu skilað nema stærra bákni, auknum kerfiskostnaði og þá hefur líka óráðsían í rekstri borgarinnar aukist.

Mig langar því til að tilkynna þingheimi að ég hyggst leggja fram frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011. Það geri ég ásamt Bryndísi Haraldsdóttur, 6. þm. Suðvest. Breytingin felur í sér að sveitarfélögum verði gefið meira svigrúm en nú er til að ákveða fjölda kjörinna fulltrúa í sveitarstjórnum sínum. Í tilviki Reykjavíkur verði afnumin sú skylda að hafa borgarfulltrúa 23. Þar verði einungis heimild þannig að borgarstjórn geti sjálf ákveðið hvort hún vilji hafa borgarfulltrúa 23 eða 15 eins og var lengi vel. Þessi breyting mun ekki einungis hafa áhrif í Reykjavík. Ákvæðið hefur haft áhrif til fjölgunar bæjarfulltrúa í Mosfellsbæ og Garðabæ í fullkominni óþökk þeirra bæjarstjórna. Þessu þarf að breyta og gefa sveitarstjórnunum meira vald til að ákveða sjálfar hve stórt eða lítið báknið á að vera.