152. löggjafarþing — 36. fundur,  9. feb. 2022.

gögn frá Útlendingastofnun .

[15:35]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ef Útlendingastofnun og dómsmálaráðherra færu að lögum þá hefðu allsherjar- og menntamálanefnd borist gögn, sem hún þarf til að vinna umsóknir um ríkisborgararétt, snemma í desember í fyrra. En sú stofnun og sá ráðherra hafa kosið að fara ekki að lögum og hafa enn ekki afhent þinginu þau gögn sem þingið þarf og á tilkall til lögum samkvæmt, nú þegar kominn er miður febrúar. Ég kem enn og aftur hér upp, eins og við höfum mörg gert, í fundarstjórn forseta vegna þess að bæði hæstv. forsætisráðherra og hæstv. forseti hafa sagst ætla að ræða þetta mál við hæstv. dómsmálaráðherra og hvetja hann til að fara að lögum. En enn er ekkert að frétta af því. Enn er hvorki dómsmálaráðherra né Útlendingastofnun að fara að lögum eða að verða þinginu úti um þau gögn sem þingið á rétt á.

Ég vil því spyrja hæstv. forseta hér í fundarstjórn forseta: Hvar standa þessi mál? Hvenær stendur til að dómsmálaráðherra Íslands fari að lögum?