152. löggjafarþing — 36. fundur,  9. feb. 2022.

gögn frá Útlendingastofnun .

[15:37]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Við höfum verið að sjá að undanförnu hvers konar skylda það er samkvæmt lögum að aflétta sóttvarnaaðgerðum, bara lagaleg skylda til þess. Það er líka lagaleg skylda Alþingis að afgreiða þær umsóknir sem koma hingað vegna ríkisborgararéttar. Til þess að við getum gert það þurfum við þau gögn sem er borgað fyrir að Útlendingastofnun afgreiði. Borgað fyrir. Samt fáum við þau ekki. Hér erum við að glíma við, að því er virðist vera, geðþótta ráðherra en ekki lög. Þetta er mál sem varðar ráðherraábyrgð. Nú verður farið að vera hægt að tala um að það sé orðið í alvöru eitthvað sem við þurfum að hugsa um.