gögn frá Útlendingastofnun .
Herra forseti. 1. október rann út frestur til að skila inn umsóknum til Útlendingastofnunar til að koma áfram til Alþingis vegna veitingar ríkisborgararéttar með lögum. Nokkuð sem Alþingi gerir yfirleitt fyrir jól. Nú er kominn febrúar. 1. október var fyrir fjórum mánuðum. Fólkið sem skilaði inn umsókn í góðri trú er búið að bíða þriðjung af ári, ekki vegna þess að það sé eitthvert vesen eða það hafi skilað inn vitlausum gögnum eða að það sé mikið að gera eða bara eitthvert vesen hjá þinginu. Nei, þingið er búið að sárbæna stjórnsýsluna um að leysa úr gíslingu gögn þessa fólks til að við getum afgreitt þau. Þetta er fullkomlega ólíðandi gagnvart öllum þessum einstaklingum og gagnvart Alþingi. Það er fáránlegt, (Forseti hringir.) herra forseti, að Útlendingastofnun og ráðherra útlendingamála séu að misbeita valdi sínu með þessum hætti (Forseti hringir.) til að ná fram pólitískum vilja sínum gegn fólkinu sem sótti um ríkisborgararétt í október.