152. löggjafarþing — 36. fundur,  9. feb. 2022.

gögn frá Útlendingastofnun .

[15:40]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Já, sagan endalausa um fundarstjórn út af ríkisborgararétti heldur áfram. Hún heldur áfram vegna þess að hæstv. ráðherra heldur áfram að hunsa Alþingi, heldur áfram að hunsa beiðni frá virðulegum forseta, heldur áfram að hunsa beiðni frá hæstv. forsætisráðherra, sem á að vera hans yfirmaður, hunsar lög og hunsar virðingu Alþingis.

Því spyr ég, virðulegi forseti: Hefur forseti heyrt í hæstv. ráðherra nýlega um það hvort hann ætli að fara eftir lögum eða hvort við þurfum að gera eitthvað til að fjarlægja hann úr því embætti sem hann er í í dag? (BLG: Heyr, heyr.)