152. löggjafarþing — 36. fundur,  9. feb. 2022.

gögn frá Útlendingastofnun .

[15:41]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Í síðustu viku gagnrýndi ég hvernig ríkisendurskoðandi var selfluttur frá vettvangi löggjafarvaldsins og yfir til framkvæmdarvaldsins með algerlega fordæmalausri beitingu á 36. gr. starfsmannalaga. Alþingi er aðili að þeim gjörningi. En þetta er ekki eina dæmið um að uppstokkun Stjórnarráðsins sé notuð sem skálkaskjól fyrir mjög óeðlilega lagaframkvæmd, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Nýlega birtist tilkynning á vef háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytis þar sem tímabundin setning nýs ráðuneytisstjóra er réttlætt með vísan til 24. gr. starfsmannalaga, lagaákvæðis sem tekur til aðstæðna þegar embættismaður hefur fallið frá, ekki þegar skipað er eða sett í nýtt embætti. Það er alveg ljóst ef við skoðum t.d. álit umboðsmanns Alþingis, sem umboðsmaður vísar til í fyrirspurnarbréfi sínu til ráðherra, að þetta ákvæði á að túlka þröngt. Það er ekki þannig að við uppskiptingu Stjórnarráðsins hafi (Forseti hringir.) Alþingi gefið ráðherrum og ríkisstjórn eitthvert fríspil þegar kemur að túlkun og beitingu (Forseti hringir.) lagaákvæða eins og starfsmannalaga. Það er ekki þannig og við verðum að senda skýr skilaboð um það.