gögn frá Útlendingastofnun .
Herra forseti. Ég stóðst bara ekki freistinguna að taka þátt í þessu partíi. Ég get tekið undir allt sem hér hefur verið sagt um mikilvægi og alvarleika efnisatriða þessa máls en ég ætla samt að nálgast þetta út frá því sem ég hef gert áður og það er virðing Alþingis. Mér finnst ótækt að staðan skuli vera sú að það að koma hingað upp og tuða eitthvað sé það eina sem við höfum. Lögin eru skýr. Vald Alþingis er skýrt samkvæmt þeim lögum. Skylda þingmanna er skýr samkvæmt þeim lögum og starf ráðherrans er líka skýrt. Það er verið að brjóta hér lög. Við stöndum hér og getum ekkert gert annað en beðið hæstv. forseta Alþingis um veita okkur lið. Og ég veit ekki einu sinni, með fullri virðingu fyrir nefndum forseta, hvaða úrræði hann hefur gegn einbeittum brotavilja ráðherrans. Hvað gerir fólk almennt þegar brotin eru á því lög, þegar það er einbeittur brotavilji? Hvert verður næsta skref okkar?