152. löggjafarþing — 36. fundur,  9. feb. 2022.

almannatryggingar og félagsleg aðstoð.

38. mál
[17:18]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf):

Forseti. Það vill enginn lenda í þeirri stöðu að verða öryrki. Það er alveg ljóst. Þótt ýmislegt megi segja og virkilega gagnrýna hvernig búið er að öryrkjum þá búum við í landi þar sem er engu að síður þetta öryggisnet sem við höfum hér. Það má hins vegar ekki breytast í gildru. Það er það sem þetta snýst um, að gefa öryrkjum sem finna til þess að heilsa þeirra er að batna þann möguleika að vinna sig aftur út úr örorku í staðinn fyrir að binda þá í henni. Það er nefnilega eitt að finna styrk sinn aftur og finna hann vaxa, annað er að treysta honum og vita að maður geti treyst honum, sérstaklega ef það er jafn mikið í húfi og raun ber vitni, að fólk geti hreinlega misst framfærslu sína. Ég hef sjálf lent í kulnun eftir margra ára álag. Frá hruninu upplifði ég það að þurfa að fara í töluvert langt veikindaleyfi út af ofþreytu og kulnun. Ég var þó svo heppin að vera ekki líkamlega veik að öðru leyti. En ég get alveg sagt að það var bara töluvert skref að snúa aftur til vinnu og samt hafði ég góðan vinnustað að ganga að og ég vissi að hverju ég var að ganga. Það var samt: Get ég þetta? Ræð ég við þetta? Dett ég bara aftur niður í það sama? Ég get því rétt ímyndað mér að fyrir fólk sem jafnvel er búið að eiga við alvarleg líkamleg eða andleg veikindi í langan tíma sé þetta skref, sé þetta átak. Við eigum að styðja fólk alla leið sem vill og getur farið þessa leið. Við eigum að gera það. Þetta snýst um að fá að byggja sig upp aftur án þess að greiða fyrir það dýrum dómi með því hreinlega að missa framfærslu sína hafi öryrkinn ofmetið styrk sinn eða hafi viljinn bara verið meiri en mátturinn. Þegar við förum í líkamsrækt, þau okkar sem á annað borð reyna það eitthvað, förum við ekki beint í þyngstu lóðin. Við byrjum á þeim léttustu og við vinnum okkur upp og við þjálfum okkur og við styrkjum okkur og við söfnum kröftum. Við verðum að leyfa öryrkjum að gera það sama. Við verðum að leyfa þeim að byggja sig upp og styðja þá til þess á allan þann hátt sem við getum því að það er allra hagur og það vinna allir með því að leyfa þeim það. Það tapar enginn á því. Ég ætla því bara að treysta því að þessu frumvarpi verði veitt brautargengi vegna þess að það er jú allra hagur.