152. löggjafarþing — 36. fundur,  9. feb. 2022.

almannatryggingar og félagsleg aðstoð.

38. mál
[17:36]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Frú forseti. Það vill enginn verða öryrki og það vill enginn vera öryrki. Stuðningsnetið sem við höfum sem betur fer hér á landi fyrir fólk sem verður öryrkjar hefur hjálpað. En það er stuðningsnet sem líka gerir það sem flest net gera, þau sem í það fara festast í því. Það að vera föst í slíku kerfi og hafa ekki neina möguleika til að komast úr því er kerfi sem er stórlega gallað, er sorglegt. Það er líka sorglegt að þegar reynt er að benda á nýjar leiðir, nýjar aðferðir til að hjálpa fólki að komast út úr kerfinu, er það alltaf stoppað af því að það á að endurskipuleggja allt kerfið. Það á að búa til allt netið upp á nýtt. Það þarf að sauma netið upp á nýtt áður en við getum farið að finna út úr því hvað virkar og hvað virkar ekki. Það er til fullt af góðum hugmyndum um það hvernig hægt er að losa fólk úr þessu neti. Ein þeirra er hér. Það er meira að segja ekki hugmynd Flokks fólksins heldur hugmynd frá Svíþjóð. Við getum ekki einu sinni kennt hv. þingmönnum Flokks fólksins um að búa til þetta kerfi algerlega upp á nýtt. Nei, við erum að sjá góða hugmynd annars staðar frá tekna hingað inn. En þá komum við að dálitlum galla sem er hér innan þessara veggja. Hann er nefnilega sá að góðar hugmyndir virðast bara mega koma frá stjórnarmeirihlutanum. Ég spyr mig í þessu tilfelli hvort við þurfum kannski að breyta því hvað stendur á þeim frumvörpum sem við leggjum fram. Ég held að ef við tækjum nöfn hv. þingmanna Flokks fólksins út og myndum segja, með leyfi forseta, „fra vores nordiske venner“ yrði það samþykkt um leið. Já, það er nefnilega þannig að við sem hér inni sitjum, í hvorri hlið salarins sem við sitjum ef við værum eins og í þinginu í Bretlandi eða í Bandaríkjunum, þurfum að geta tekið góðar hugmyndir og við þurfum að geta prófað þær.

Ég minnist þess að ég átti samræður við eistneska forsetann fyrir nokkrum árum og ég var að tala við hann um nýsköpun. Eitt af því sem hún sagði að hefði gefist rosalega vel í Eistlandi var að þau hættu að hugsa um öll lög sem eitthvað sem stæði til eilífðar heldur væru þau tilbúin að setja lög, eins og t.d. þessi lög, og segja: Ókei, prófum þetta í tvö ár. Kannski virkar þetta ekki á Íslandi eins og það gerði í Svíþjóð en við erum til í að prófa það vegna þess að við vitum að kerfið er brotið og við þurfum að finna lausnir og við þurfum að vera óhrædd við að prófa lausnir, jafnvel þegar þær koma frá hv. þingmönnum sem brenna fyrir þessu máli vegna þess að þau þekkja það af eigin raun. Við sem þekkjum það ekki af eigin raun þurfum að hlusta og vera tilbúin að prófa, ekki vegna þess að kerfið eigi þá að vera svona um aldir alda heldur: Heyrðu, kannski eru þetta bara ágætishugmynd þó að hún komi hinum megin úr salnum.

Ég skora því á alla hv. þingmenn, óháð því hvaða flokk viðkomandi er í, og ég skora á hæstv. ráðherra, að skoða góðar hugmyndir. Ekki bara taka málið og svæfa það í nefnd eins og gerist því miður með 95% af því sem kemur frá stjórnarandstöðunni jafnvel þótt um sé að ræða góðar hugmyndir.