umhverfismat framkvæmda og áætlana.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir þessa ágætu ræðu og það ágæta frumvarp sem hér er lagt fram. Ég fagna allri umræðu um orkumál. Ég held að við séum bara á þeim stað í dag að við þurfum að ræða orkumál, sama í hvaða mynd og af hvaða stærðargráðu sem það er. Það er afar mikilvæg og þörf umræða. Það er eitt eða tvennt í þessu sem mig langaði að forvitnast aðeins betur um hjá hv. þingmanni. Eins og ég les frumvarpið, og hv. þingmaður kom inn á í ræðu sinni, snýst það um að setja allar virkjanir, þessar smávirkjanir svokölluðu, í umhverfismat. Gott og vel. Í ræðu sinni hér á undan talaði hv. þingmaður um að koma þyrfti böndum á að aðilar væru ekki að safna að sér virkjunum og ég get alveg deilt þeim áhyggjum með þingmanninum. En mig langar að spyrja hv. þingmann hvernig þetta frumvarp kemur í veg fyrir það. Ég sé það ekki, en það getur verið að það sé bara þekkingarleysi mitt. Annað sem mig langar að velta fyrir mér er að nú höfum við orðið þess áskynja á síðustu árum og misserum að það er mjög mikið um það að bændur, sérstaklega, og þeir sem eru á köldum svæðum fari í þessar smávirkjanir til þess að koma sér í ódýrara og tryggara rafmagn, sem er vel. Þessar smávirkjanir eru í dag tilkynningarskyldar til Skipulagsstofnunar sem leitar umsagnar og leyfis hjá bæði leyfisveitendum og sérfræðistofnunum. Mig langar að vita: Telur hv. þingmaður að þetta verði ekki til þess að fæla fólk frá því að fara í þessar smávirkjanir, ef við erum að þyngja kerfið enn frekar frá því sem er?