152. löggjafarþing — 36. fundur,  9. feb. 2022.

umhverfismat framkvæmda og áætlana.

42. mál
[18:47]
Horfa

Flm. (Inga Sæland) (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir andsvarið. Nei, ég hef nú ekki miklar áhyggjur af því. Miðað við nútímann og hvernig staða okkar er í dag finnst okkur eðlilegasti hlutur í heimi að þessar virkjanir fari í umhverfismat. Þetta er ekki það þröngt að einyrkinn geti ekki virkjað bæjarlækinn á jörðinni sinni fyrir eigin orkuframleiðslu. Þetta mál er ekki þannig vaxið og ég tel á engan hátt að verið sé að þyngja kerfið að neinu leyti. Ég tel þetta hins vegar koma í veg fyrir þá tilhneigingu sem sást greinilega þegar frumvarpið var smíðað á sínum tíma — fyrir þremur til fjórum árum, maður er hættur að telja hve oft maður hefur mælt fyrir þessu — að menn voru safna að sér smávirkjunum. Við vissum jafnvel að einn og sami aðilinn hafði óskað eftir 99 leyfum í þessu skyni. Það virtist vera þannig að menn vildu nýta sér þann möguleika að þær virkjanir sem við erum að reyna að ná utan um hér voru í þessum svokallaða B-flokki sem þýddi að þær þurftu ekki að gangast undir umhverfismat. Okkur í Flokki fólksins þykir það vænt um Ísland, náttúruna okkar og orkuna, að okkur þykir algjörlega sjálfsagt að það sem er í þessu formi, hvort heldur sem um er að ræða vatns- eða vindaflsvirkjanir, fari í umhverfismat.