152. löggjafarþing — 36. fundur,  9. feb. 2022.

umhverfismat framkvæmda og áætlana.

42. mál
[18:48]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það er þá rétt skilið hjá mér að það er mat þeirra sem leggja tillöguna fram að með því að setja þessar virkjanir og virkjunarkosti í umhverfismat muni draga úr möguleikum eða líkum á því að þessir aðilar, sem væntanlega eru þá stærri og stórir, sæki um virkjunarleyfi, þ.e. ef óska þarf eftir því að framkvæmdin fari í umhverfismat. Það eru sem sagt rökin fyrir málinu, ef ég skil hv. þingmann rétt. Ég skil hv. þingmann þá þannig.

Ég fór og skoðaði málið. Eins og kom fram áðan hef ég áhuga á raforkumálum og deili með hv. þingmanni væntumþykju á landinu okkar og náttúrunni sem er afar mikilvæg. Við sem búum nálægt náttúrunni, á landsbyggðinni, þekkjum hana og vitum hve dýrmæt hún er. Ef einstaklingur ætlar að fara í það að setja smávirkjun af stað þá er ferlið þannig í dag að þú getur ekki farið og mokað þinn skurð og sett þinn rafal ofan í lækinn og byrjað að búa til rafmagn. Þú þarft framkvæmdaleyfi, sem er lögbundið, þú þarft byggingarleyfi, þú þarft virkjunarleyfi, þú þarft starfsleyfi, ef virkjunin er stærri en 2 MW, og þú þarft leyfi Fiskistofu. Þú þarft að hafa samráð við Náttúrufræðistofnun, náttúrustofur, Veðurstofu, Veiðimálastofnun, Fiskistofu, Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga, Umhverfisstofnun, flutningsaðila raforku, landeigendur, Vegagerðina og Ísorku, eða Íslenskar orkurannsóknir. Það er bara þetta sem ég er að velta fyrir mér, hæstv. forseti, hvort við séum ekki þegar með kerfi sem tekur utan um þetta því að þessar virkjanir í dag fara inn í heilmikið kerfi.