um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Ég var að koma af opnum fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar með hæstv. dómsmálaráðherra þar sem kom skýrt fram að hæstv. dómsmálaráðherra ætlar ekki, þrátt fyrir skýra lagaskyldu þar um, að beina því til Útlendingastofnunar að afhenda þær umsagnir og þau gögn sem allsherjar- og menntamálanefnd þarf til að vinna umsóknir um ríkisborgararétt. Það er alveg á hreinu að hæstv. dómsmálaráðherra lítur á það sem einhvers konar undantekningu að Alþingi hafi samkvæmt stjórnarskrá og samkvæmt lögum rétt til að veita ríkisborgararétt með lögum og þvælir hér fram og til baka stjórnsýsluákvörðunum og síðan undirbúningi lagasetningar frá Alþingi. Það kom einnig fram, og þetta er spurning mín til hæstv. forseta sem hann svaraði ekki í gær þegar ég fór í fundarstjórn út af þessu máli, að ráðherrann hefði rætt við hæstv. forseta um þetta mál á þingflokksfundum en hafði í raun lítið annað um það að segja. Ég vil spyrja hæstv. forseta: Hefur hann virkilega ekkert gert til að fá dómsmálaráðherra til að hætta að standa í vegi fyrir því að Alþingi fái þær umsagnir frá Útlendingastofnun sem því ber að fá? Hver hafa samskipti forseta við dómsmálaráðherra verið?