152. löggjafarþing — 37. fundur,  10. feb. 2022.

um fundarstjórn.

[10:33]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Heldur fannst mér hæstv. ráðherra gera lítið úr þeim samskiptum. Gott og vel. Ef þau hafa einhver verið þá væri ágætt að fá upplýst um það hvort forseti hafi pressað á að þingið fái þau gögn sem því ber. Það kom fram, á þeim fundi sem hér var vitnað til, að ráðuneytisstarfsfólk kom inn á fundinn í desember og lofaði því að gögn kæmu fyrir 1. febrúar. Ráðherra harmaði þann misskilning sem greinilega hafði átt sér stað í samskiptum ráðuneytisins við nefndina og ítrekaði að hann væri fyrir sitt leyti alveg skýr með það hvernig hann teldi að málum ætti að vera háttað. Það verður ekkert skilið öðruvísi en að ráðherra hafi með einhverjum hætti gefið leiðsögn, fyrirskipun, eða hvað menn vilja kalla það, til Útlendingastofnunar um að þessi gögn verði ekki afhent. Þetta er því orðið alveg ótrúlega erfitt og slæmt mál sem forseti verður að stíga inn í.