152. löggjafarþing — 37. fundur,  10. feb. 2022.

opinn fundur með dómsmálaráðherra vegna gagna frá Útlendingastofnun.

[10:34]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Virðulegur forseti. Ég vil taka undir það sem fram hefur komið hér hjá þeim hv. þingmönnum sem á undan mér töluðu. Ég vil gera það að tillögu minni að forseti Alþingis upplýsi þingið um það hvort það sé rétt sem hæstv. ráðherra sagði á þessum opna fundi í morgun að það þyrfti ekki að láta þingið fá þessi gögn. Lagaákvæðin í þingsköpum Alþingis ættu hreinlega ekki við í þessu tilviki. Þetta myndi ég vilja fá á hreint og mér finnst að það sé hlutverk forseta þingsins að skýra þetta nánar fyrir þingheimi. Svo væri ekki verra að það yrði bara almennt séð ýtt betur á þessi mál því að þetta hnútukast sem nú er orðið milli þings og ráðuneytis og þings og Útlendingastofnunar bitnar bara á því fólki sem hér vill búa.