opinn fundur með dómsmálaráðherra vegna gagna frá Útlendingastofnun.
Virðulegur forseti. Ég vil taka undir með þeim sem talað hafa hér á undan mér. Þetta er orðið stórfurðulegt mál. Það er eins og við séum hérna eins og bilaður grammófónn á hraðsnúningi, að biðja um einföld gögn. Hvað er að í þessu kerfi? Ég spyr: Er ráðherravaldið orðið algjört? Ég get ekki ímyndað mér hvað þetta er. Er verið að fela eitthvað stórkostlegt í þessum gögnum eða er hreinlega verið að koma í veg fyrir að viðkomandi nefnd geti unnið sín störf? Það hlýtur að vera grafalvarlegt. Það hlýtur að vera kominn tími á það hjá hæstv. forseta að taka á þessu máli og sjá til þess að ráðherravaldið geti ekki með einhliða ákvörðun ákveðið að nefndin fái ekki þau gögn sem hún þarf á að halda.