opinn fundur með dómsmálaráðherra vegna gagna frá Útlendingastofnun.
Virðulegi forseti. Ég held að það þurfi að horfa á það að þetta snýst um samstarf ráðherra við Alþingi Íslendinga, við löggjafarvaldið. Alþingi hefur ákveðnu hlutverki að gegna og mér virðist sem hæstv. ráðherra sé í einhverri þeirri vegferð að hann ætli ekki að lyfta fingri til að liðsinna Alþingi í störfum sínum og þá sé hann orðinn sjálfstæð hindrun við það að Alþingi geti unnið samkvæmt verkefnum sínum. Ef við hugsum það nú aðeins og tökum einhvern annan málaflokk og þetta væri verklagið; hvaða fordæmi er verið að setja hér um það hvernig Alþingi á að geta unnið? Eða erum við komin á einhvern annan stað, að ráðherra á Íslandi sé í sjálfstæðu stríði við löggjafann, Alþingi Íslendinga? Er það virkilega staðan hér?