opinn fundur með dómsmálaráðherra vegna gagna frá Útlendingastofnun.
Virðulegi forseti. Á þessum sama fundi í morgun ræddi hæstv. dómsmálaráðherra um það hvernig hann einfaldlega túlkaði lögin sjálfur. Það sem hann viðurkenndi einfaldlega var að hann væri að brjóta þau lög sem hann á að fara eftir. Kannski er þetta nýja aðferðin við að losna við að verða dæmdur fyrir eitthvað. Já, ég keyrði á 140. Æ, mér finnst lögin nú eiga að vera þannig að ég megi keyra á 140. Þetta er nefnilega mjög mikilvægt fordæmi. Ef hæstv. ráðherra getur túlkað lög eins og hann vill en ekki eins og lögin standa skrifuð þá erum við að brjóta niður allt kerfið hér.