152. löggjafarþing — 37. fundur,  10. feb. 2022.

opinn fundur með dómsmálaráðherra vegna gagna frá Útlendingastofnun.

[10:38]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Virðulegur forseti. Nú sit ég ekki í hv. allsherjar- og menntamálanefnd en varð ögn hvumsa að heyra að ráðherra hefði í raun kastað boltanum í fang forseta á opnum fundi í morgun og vil minna hæstv. forseta á að hann er forseti alls þingsins. Hann hefur skyldum að gegna gagnvart þinginu samkvæmt 8. gr. þingskapalaga. Hann skal sjá til þess að störf þingsins séu í samræmi við ákvæði stjórnarskrár, þingskapa og annarra laga. Ef forseti grípur ekki af fullri hörku inn í það sem er að eiga sér stað hérna, þar sem ráðherra er að koma í veg fyrir að lög nái fram að ganga með athæfi sínu, að Alþingi geti uppfyllt lagaskyldur sínar, þá held ég að forseti þurfi að renna yfir þingskapalögin aftur og sjá hvað til síns starfs heyrir. Ég held að það sé nauðsynlegt að forseti taki nú stöðu með Alþingi til að verja þessa merku stofnun.