opinn fundur með dómsmálaráðherra vegna gagna frá Útlendingastofnun.
Forseti. Mig langar til að vita hversu alvarlegt mál hæstv. forseta finnst þetta vera. Ég þekki forseta einungis af góðum verkum, ekkert endilega rosalega hraðvirkum verkum en alla vega góðum. Því alvarlegra sem þetta mál er þeim mun hraðar myndi maður halda að þyrfti að grípa til verka. Við erum nefnilega í þeirri stöðu, eins og kom fram á opna fundinum í morgun, að undirnefndin fékk einfaldlega bara tilboð um að handvelja, að hver nefndarmaður gæti handvalið einhverjar tíu umsagnir úr bunkanum til þess að afgreiða bara og þá væri málið dautt. Að sjálfsögðu sagði undirnefndin: Kemur ekki til greina. Slík ófagleg vinnubrögð eru bara algjört — ég vil ekki nota rétt lýsingarorðið, það er ekki viðeigandi í þessum ræðustól. Það er hryllilega slæmt að bjóða upp á svona ófagleg vinnubrögð. Að sjálfsögðu sagði þingið: Nei, kemur ekki til greina. Við eigum að vinna þetta vel og faglega, ekki eftir einhverjum geðþóttaduttlungum hjá ráðherra.