opinn fundur með dómsmálaráðherra vegna gagna frá Útlendingastofnun.
Herra forseti. Ég er hér aumur þingmaður að reyna að skilja þær reglur sem við erum nú farin að starfa eftir samkvæmt orðum ráðherra og eiginlega aðgerðaleysi forseta. Vegna þess að ef ég skil þetta rétt, að á þessum fundi hafi ráðherra vísaði í grein þingskapalaga um eftirlitsstörf Alþingis, að þetta sé undanskilið því, þá kemur það mjög skýrt fram, og þar af leiðandi ekki skylda hans að gefa upplýsingar, að eftirlitsstörf Alþingis snúa að störfum ríkisins og undirstofnana þess. Það er skilgreining á opinberum störfum. Þannig að spurningin er þá kannski: Horfum við fram á einhvern nýjan veruleika hér, að útlendingamálin séu ekki lengur opinbert málefni og komi ekki til kasta þingsins? Ég myndi gjarnan vilja heyra það og ég bíð jafn spennt og aðrir þingmenn eftir viðbrögðum forseta hér. En ég óska eftir viðbrögðum stjórnarþingmanna vegna þess að þetta kemur bara þinginu við og framtíðarstarfi. Erum við búin að vera að starfa hér undanfarið gegn lögum? Höfum við verið að kalla eftir málum og fengið upplýsingar um mál sem við áttum alls ekkert að fá? Eða hver er staðan? Lögin eru óbreytt. Túlkunin virðist vera breytast.