opinn fundur með dómsmálaráðherra vegna gagna frá Útlendingastofnun.
Virðulegur forseti. Hér er nú mörgu snúið á hvolf í þessari umræðu um fundarstjórn forseta, eins og það að ráðherra túlki lög með sínu nefi og hafi kastað boltanum í fang hæstv. forseta; að ráðherra komi í veg fyrir að lögin nái fram að ganga o.s.frv. Þetta snýst um það að það vinnulag sem við höfum falið stofnuninni að vinna eftir er að gæta jafnræðis milli umsækjenda og gagnsæis í því sem stofnunin er að fjalla um. Það sem Alþingi er að biðja okkur um að gera er að taka ákveðinn umsóknafjölda fram fyrir í röðinni, sem var vinnulagið áður þegar umsóknir voru mjög fáar, og afgreiða þær á einhverjum sérstökum hraða á kostnað hinna. Við þetta hefur umboðsmaður Alþingis gert athugasemdir, að málsmeðferðarhraðinn hjá þeim sem þurftu að bíða og fóru hefðbundna leið sé allt of langur. Við þessu er verið að bregðast. (Forseti hringir.) Alþingi er með þessu vinnulagi sínu að óska eftir því að ráðherrann og stofnunin (Forseti hringir.) brjóti lög sem við treystum okkur ekki til að gera nema Alþingi setji á okkur lög (Forseti hringir.) sem kveða á um þetta sérstaklega. (Gripið fram í.) Það er hvergi kveðið á um það (Forseti hringir.) sérstaklega í lögunum að það eigi að hraða þessum umsóknum eitthvað umfram aðrar. (Gripið fram í: Það er í lögum.) — Það er hvergi kveðið á um það í lögum.