152. löggjafarþing — 37. fundur,  10. feb. 2022.

opinn fundur með dómsmálaráðherra vegna gagna frá Útlendingastofnun.

[10:44]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Ég verð að segja að sem nýr þingmaður þá er ég eiginlega bara algjörlega orðlaus. Ég er orðlaus yfir því að Alþingi sé neitað um umbeðnar upplýsingar. Þetta er ekki traustvekjandi. Þetta er til þess fallið að vekja upp spurningar um hvað sé verið að fela. Ég vona að það sé ekki verið að fela neitt en þetta er ekki traustvekjandi. Mér finnst þetta vera lítilsvirðing við kjósendur, við þingmenn, við nefndina, við Alþingi, hreinlega bara við lýðræðið. Ég ætla ekki að segja meira vegna þess að ég er eiginlega algerlega orðlaus.