152. löggjafarþing — 37. fundur,  10. feb. 2022.

opinn fundur með dómsmálaráðherra vegna gagna frá Útlendingastofnun.

[10:45]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegi forseti. Það er auðvitað með miklum ólíkindum að heyra hæstv. dómsmálaráðherra koma hér upp og þvæla öllu út og suður. Það er mjög skýrt í lögum um ríkisborgararétt að meginreglan er sú að Alþingi veitir ríkisborgararétt með lögum. Þetta er 6. gr. laga um ríkisborgararétt. Síðan er Útlendingastofnun heimilt að veita ríkisborgararétt að ákveðnum skilyrðum, lagaskilyrðum, uppfylltum. Þannig virkar þetta. Áður en Alþingi veitir ríkisborgararétt með lögum, sem Alþingi nota bene stýrir sjálft hvernig það veitir, skal — og það stendur í lögunum: skal — Útlendingastofnun afhenda umbeðin gögn. Fyrir utan auðvitað þessa ævintýralegu túlkun á 51. gr. þingskapalaga —og ég óska eftir að fá minnisblað frá lagaskrifstofu Alþingis um það hvort þessi ævintýralega túlkun hæstv. ráðherra eigi við nokkur rök að styðjast — er það auðvitað með miklum ólíkindum að ráðherra vísi í jafnræði á milli umsækjenda en bjóði svo undirnefndinni að taka 30 umsóknir af þeim 170 sem bárust þinginu fram fyrir röðina. Hann heldur náttúrlega engu vatni, þessi málflutningur ráðherra.