opinn fundur með dómsmálaráðherra vegna gagna frá Útlendingastofnun.
Herra forseti. Hæstv. ráðherra getur auðvitað fabúlerað endalaust um það hvernig heimurinn eigi að ganga og virka og hvernig honum finnist að lög eigi að vera. Honum ber þó að fara eftir þeim. Og ef það er tregða hjá Útlendingastofnun þá eru auðvitað margvíslegar leiðir til að bregðast við því aðrar en að brjóta lög. Ég vil bara benda hæstv. ráðherra á að hann er ekki sólkonungur sem þiggur vald sitt frá guði heldur starfar hann hérna í umboði þingsins og ber að vinna samkvæmt lögum sem þar eru sett. Um það snýst þetta mál. Þangað til hann gerir það og lýtur þeim lögum sem honum ber að fylgja þá verður enginn friður hér innan hús. Þess vegna hlýt ég að ítreka að hæstv. forseti stígi inn og beiti sér fyrir því að við fáum þau gögn sem okkur var lofað, sem var svo svikið og ráðherra segir núna að sé ekki líklegt að muni gerast.