152. löggjafarþing — 37. fundur,  10. feb. 2022.

opinn fundur með dómsmálaráðherra vegna gagna frá Útlendingastofnun.

[10:48]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Virðulegur forseti. Hæstv. dómsmálaráðherra talaði um vinnulag. Hér förum við eftir lögum. Lög um ríkisborgararétt segja einfaldlega skýrum stöfum að það sé hægt að veita fólki íslenskan ríkisborgararétt með stjórnvaldsákvörðun, sem er þá í höndum Útlendingastofnunar, eða samkvæmt lögum, sem er í höndum Alþingis. Þetta snýst ekki um að fara fram fyrir röðina, hæstv. ráðherra, heldur er það einfaldlega þannig að fólk er í alls konar aðstæðum og þess vegna sækir það um hér. Það hefur rétt á því að sækja um íslenskan ríkisborgararétt samkvæmt lögum og gerir það. Það er ekki um að ræða að taka einhverja fram fyrir aðra. Fólk sækir um í gegnum Alþingi. Það tekur það skýrt fram. Ráðherra verður að kynna sér málaflokk sinn betur ef hann er á svona villigötum. Þetta er skýrt í lögunum og hann þarf bara að fá leiðsögn í þessu (Forseti hringir.) fyrst hann hefur svona lítið vit á þessu. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)