152. löggjafarþing — 37. fundur,  10. feb. 2022.

opinn fundur með dómsmálaráðherra vegna gagna frá Útlendingastofnun.

[10:49]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg):

Hæstv. forseti. Það er alveg skýrt að Alþingi veitir ríkisborgararétt með lögum og það er mjög mikilvægt að Alþingi geri þetta. Það getur enginn, held ég, ímyndað sér hversu fjölbreyttar aðstæður fólks sem er að sækja um eru, nema einmitt að hafa kynnt sér þau gögn sem Útlendingastofnun hefur unnið fyrir Alþingi og við höfum notað til að byggja á þegar við veitum fólki ríkisborgararétt með lögum. Það er gríðarlega mikilvægt að Alþingi fái þau gögn sem verið er að óska eftir. Sem betur fer hefur samstarfið við Útlendingastofnun oft gengið gríðarlega vel í þessum málum. Það hefur hins vegar ekki verið þannig síðustu nokkur misseri. Þar hefur verið misbrestur á. Ég bind hins vegar vonir við að allsherjar- og menntamálanefnd fari í þessa vinnu og þetta samtal við Útlendingastofnun (Forseti hringir.) og komi þessum málum aftur í lag. Það er sómi Alþingis að við gerum þetta vel og að við veitum fólki hér ríkisborgararétt þannig að sómi sé að.