152. löggjafarþing — 37. fundur,  10. feb. 2022.

opinn fundur með dómsmálaráðherra vegna gagna frá Útlendingastofnun.

[10:51]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Herra forseti. „Ísland er lýðveldi með þingbundinni stjórn.“ Hæstv. forseti kannast kannski við 1. gr. stjórnarskrárinnar en ég velti því fyrir mér hvort hæstv. dómsmálaráðherra þurfi upprifjunarkúrs í þessu grundvallaratriði stjórnskipunar Íslands. Ráðherrann situr í umboði þings, meiri hluta þings. Hann á að fara að lögum eins og Útlendingastofnun á reyndar líka að gera en hefur þráast við, eins og kom fram hjá hv. þm. Steinunni Þóru Árnadóttur, síðustu ár hefur Útlendingastofnun þráast við og reynt að sveigja þau lög að sínum vilja og nú að brjóta þau. Það sem verra er er að núna, þegar Útlendingastofnun er orðin fullkomlega forhert, veitir dómsmálaráðherra henni skjól. Maðurinn sem á, eins og við hin, að standa vörð um stjórnarskrá Íslands veitir Útlendingastofnun skjól. (Forseti hringir.)

Herra forseti. Þetta fær ekki staðist.